Missti sjálfur foreldra sína í bílslysi

Hann sagði að stjórnvöld hefðu staðið að ýmsum samgöngubótum á …
Hann sagði að stjórnvöld hefðu staðið að ýmsum samgöngubótum á síðustu árum, sérstaklega frá árinu 2017, en hugarfarsbreytingu þyrfti til. „Að við sættum okkur ekki við að missa fólk í umferðinni,” sagði Sigurður. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég átti mjög auðvelt með að setja mig í spor hennar. Ég og systkini mín og fjölskylda urðum fyrir þessu, að missa foreldra okkar í bílslysi. Ég hef verið þeirrar skoðunar að það hafi haft áhrif á mitt líf,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, í Kastljósi kvöldsins. 

Þar ræddi hann við Láru Ómarsdóttur um banaslys sem varð á Kjal­ar­nesi í júní­lok. 

Heiðrún Finns­dótt­ir missti föður sinn og stjúp­móður í slysinu. Á veg­arkafl­an­um sem slysið varð á var nýtt mal­bik sem var afar hált og stóðst ekki kröf­ur Vega­gerðar­inn­ar. Heiðrún seg­ir Vega­gerðina hafa vitað af hætt­unni sem þarna var. 

Sigurður Ingi missti sjálfur foreldra sína í umferðarslysi og sagði hann því að hann skildi reiði Heiðrúnar vegna slyssins. Sigurður Ingi vottaði fjölskyldunni sem og öðrum fjölskyldum sem misst hafa ástvini sína í umferðarslysum samúð sína. 

Sigurður Ingi sagði að andlát foreldra hans hafi haft áhrif á líf hans og pólitískan feril. Af þeim sökum hafi hann talað fyrir úrbótum á samgöngukerfi hérlendis. 

Hann sagði að stjórnvöld hefðu staðið að ýmsum samgöngubótum á síðustu árum, sérstaklega frá árinu 2017, en hugarfarsbreytingu þyrfti til. 

„Að við sættum okkur ekki við að missa fólk í umferðinni,” sagði Sigurður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert