Rætt við Heilsuvernd og Umönnun

Með viðbót við hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð verða 230 hjúkrunarrrými í bænum.
Með viðbót við hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð verða 230 hjúkrunarrrými í bænum. mbl.is/Margrét Þóra Þórsdóttir

Tvö einkafyrirtæki lýstu áhuga á rekstri Öldrunarheimila Akureyrar þegar Sjúkratryggingar Íslands auglýstu reksturinn. Þetta eru Heilsuvernd og Umönnun sjálfseignarstofnun. Samkvæmt upplýsingum Sjúkratrygginga standa nú yfir viðræður við fyrirtækin á grundvelli rekstrargagna frá Akueyrarbæ, skv. upplýsingum Sjúkratrygginga.

Heilsuvernd er einkarekið fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum. Það rekur heilsugæslustöðina í Urðarhvarfi og fleira.

Auk Akureyrarbæjar sögðu Vestmannaeyjabær, Sveitarfélagið Hornafjörður og Fjarðabyggð upp samningum við ríkið um rekstur hjúkrunarheimila. Enginn sýndi áhuga á að taka við rekstrinum í Fjarðabyggð og Vestmannaeyjum og ákvað ríkið að færa hann undir heilbrigðisstofnanir ríkisins á viðkomandi svæðum, og Vigdísarholt tók við rekstrinum í Vestmannaeyjum. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert