Tók hitamynd af skjálftasvæðinu

Frá skjálftasvæðinu við Fagradalsfjall.
Frá skjálftasvæðinu við Fagradalsfjall. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hitamynd sem tekin var skömmu eftir skjálfta að stærð 5,3 á sunnudag sýnir talsverðan hita í jörðu á skjálftasvæðinu á Reykjanesskaga. 

Ari Þórólfur Jóhannesson tók myndskeið af svæðinu með hitadróna sem sjá má hér að neðan. Ari segir í samtali við mbl.is. að dökk svæði á myndinni séu köld en appelsínugul séu afar heit. Myndskeiðið var tekið um tvo kílómetra austur af Grindavík í 100 metra hæð. Appelsínugul svæði á myndskeiðinu sjást glöggt á Borgarfjalli. 

„Menn hafa eitthvað verið að spá hvort þetta hafi eitthvað með sólina að gera, en á sumum svæðum er snjór og á öðrum er það ekki þó að báðar hliðar vísi á sólina,“ segir Ari. 

Ari notar hitadrónann helst til þess að leita að týndum gæludýrum, aðallega hundum. Það var því tilbreyting að mynda skjálftasvæðið sem Ari segir að hafi verið til gamans. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert