Besta vörn gegn gróðureldum sé að kveikja ekki óþarfa eld

Ólafur Stefánsson, slökkviliðsstjóri á Akureyri.
Ólafur Stefánsson, slökkviliðsstjóri á Akureyri. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Tveir dælubílar voru kallaðir út í morgun á Norðurlandi eystra við sinubruna við Lundeyri, skammt aust­an við Þver­holt á Akureyri. Eldurinn leitaði í tvær áttir og tókst slökkviliðinu á Norðurlandi eystra að slökkva hann áður en hann varð óviðráðanlegur. 

Þetta staðfestir Ólafur Stefánsson, slökkviliðsstjóri á Akureyri, í samtali við mbl.is. „Þarna voru mikil verðmæti í kring, hús og annað,“ segir hann en ekkert er vitað um eldsupptökin enn sem komið er.

„Við tókum ákvörðun um það á fundi í morgun, slökkviliðsstjórar á starfsvæði lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, að óska eftir því við ríkislögreglustjóra að hann myndi lýsa yfir óvissustigi vegna gróðurelda,“ segir hann en hættu- eða óvissustig vegna gróðurelda ríkir því nú alls staðar á landinu nema á Austurlandi, Vestur Skaftafellssýslu og Vestmannaeyjum.

Hættu- eða óvissustig vegna gróðurelda ríkir nú alls staðar á …
Hættu- eða óvissustig vegna gróðurelda ríkir nú alls staðar á landinu nema á Austurlandi, Vestur Skaptafellssýslu og Vestmannaeyjum. Ljósmynd/Almannavarnir

„Þetta er aðallega til þess að vekja athygli almennings á þessari hættu. Við erum auðvitað á vaktinni en þetta gæti þá minnkað líkurnar á því að fólk kveiki óvart í, það passi sig með meðferð grilla og sé ekki að kveikja varðelda og slíkt,“ segir hann og minnir á að besta vörnin gegn eldinum sé að kveikja hann ekki til að byrja með.

Hann bendir einnig á að hægt er að lesa sér til um ákjósanleg viðbrögð og helstu áhættustaði á upplýsingavef um gróðurelda hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert