Lögreglurannsókn hafin

Lög­reglu­rann­sókn er haf­in á hóp­slys­inu á Ak­ur­eyri í dag, þar sem 63 börn voru í hoppu­kastala er tókst á flug í vind­hviðu. Svo seg­ir Páley Borgþórs­dótt­ir, lög­reglu­stjóri á Norður­landi eystra, í sam­tali við frétta­stofu RÚV.

Hóp­slysa­áætl­un var í gildi í fyrsta sinn á svæðinu. Páley seg­ir í sam­tali við RÚV að það sé al­var­legsta stigið, þegar rautt út­kall ber­ist. Hún bæt­ir við að þetta hafi litið illa út en sem bet­ur fer hafi bet­ur farið en fyrst á horfðist.

Hún seg­ir að viðbragðsaðilar eigi eft­ir að skoða hvað gekk vel og hvað hefði mátt fara bet­ur, en aðgerðastjórn á svæðinu hef­ur lokið starfi sínu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert