Allar niðurstöður úr leghálssýnum komnar

Samhæfingarstöð krabbameinsskimana vinnur að því að senda svarbréf.
Samhæfingarstöð krabbameinsskimana vinnur að því að senda svarbréf. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Allar konur sem hafa verið að bíða eftir niðurstöðum úr leghálssýnum sem voru tekin frá febrúar fram í maí ættu nú að hafa fengið svör inn á island.is.

Þær konur sem var ráðlagt að fara í frekari rannsóknir innan þriggja mánaða fengu skilaboð um það um leið og niðurstöðurnar bárust, að því er segir í tilkynningu.

Samhæfingarstöð krabbameinsskimana vinnur að því að senda svarbréf til þeirra kvenna sem komu í leghálssýnatöku frá júnímánuði.

„Það er því búið að vinna upp þann hala sem myndaðist við yfirfærslu verkefnisins til heilsugæslunnar. Framvegis má reikna með að svör berist fyrr og búið er að bæta í mannafla til að tryggja það,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert