Notkun sýklalyfja dregist saman um 30%

Heildarnotkun sýklalyfja í heilbrigðiskerfinu hefur dregist saman um 30% á …
Heildarnotkun sýklalyfja í heilbrigðiskerfinu hefur dregist saman um 30% á fjórum árum. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Heildarnotkun sýklalyfja í heilbrigðiskerfinu hefur dregist saman um 30% á fjórum árum þegar tekið er mið af heildarsölu sýklalyfja hér á landi, mæld í daglegum lyfjaskömmtum á hverja 1.000 íbúa (DID). 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Þó er notkun sýklalyfja hérlendis töluvert meiri en á hinum Norðurlöndunum.

„Heildarsalan var um 24 DID árið 2017 en var komin niður í um 16 DID árið 2020. Notkunin er þó enn töluvert meiri hér en annars staðar á Norðurlöndunum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri ársskýrslu embættis landlæknis um sýklalyfjanotkun árið 2020,“ segir í tilkynningunni.

Heimsfaraldurinn haft áhrif á notkun sýklalyfja

Mest minnkaði sala sýklalyfja milli áranna 2019 og 2020. Í tilkynningu embættis landlæknis um skýrsluna og niðurstöður hennar segir að ástæður fyrir minnkandi notkun sýklalyfja hjá mönnum hér á landi á árinu 2020 geti verið fjölmargar.

Bent er á að árið 2020 voru viðamiklar samfélagslegar og einstaklingsbundnar sóttvarnaaðgerðir í samfélaginu vegna COVID-19. Í tilkynningunni segir að sóttvarnaaðgerðirnar hafi leitt til fækkunar á sýkingum almennt, sérstaklega öndunarfærasýkingum, sem hafi vafalaust leitt til minni notkunar sýklalyfja. Einnig hafi á undanförnum árum verið viðhafður áróður um skynsamlega notkun sýklalyfja.

Í tilkynningu embættis landlæknis segir að markvisst sé unnið að því að sporna við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis og einn mikilvægasti þátturinn í þeirri vinnu sé að stuðla að skynsamlegri notkun sýklalyfja, bæði hjá mönnum og dýrum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert