Skemmtilegi jarðfræðingurinn

Surteyjargos. Sigurður var á vettvangi allra eldgosa á Íslandi í …
Surteyjargos. Sigurður var á vettvangi allra eldgosa á Íslandi í áratugi. Alltaf með myndavélina, eins og þegar hraun vall fram úr gíg í Surtseyjareldum. Ljósmynd/Sigurður Þórarinsson

Eldgos í Heklu, Öskju, Surtsey, Heimaey og Kröflu; kennsla og vísindastörf. Öskulagarannsóknir og eðli eldsumbrota. Æfingaferðir tunglfara til Íslands, fræðistörf og frásagnir í fjölmiðlum, söngtextagerð og virk þátttaka í samfélaginu sem skóp virðingu og vinsældir almennings. Svona má í stuttu máli lýsa efni bókarinnar Sigurður Þórarinsson – mynd af manni sem kom út á dögunum. Þar segir af Sigurði Þórarinssyni (1912-1983) sem var einn fyrsti jarðvísindamaður þjóðarinnar og sá þeirra sem lengi bar mest á. Skemmtilegar og alþýðlegar frásagnir Sigurðar í fjölmiðlum og víðar gáfu landanum vitneskju um jarðfræði landsins, þekkingu á náttúru og því að landið er kvikt.

Víða brautryðjandi

„Sigurður var brautryðjandi á mörgum sviðum jarðfræði á Íslandi, rannsakaði jökla, eldgos, landmótun, jarðsögu og margt fleira. Vinna manna nú til dags byggir á þeim grunni sem hann lagði. Annars er þessi bók ekki um jarðfræðikenningar heldur fyrst og fremst um manninn Sigurð,“ segir Sigrún Helgadóttir höfundur bókarinnar. Hún er líf- og umhverfisfræðingur að mennt, kennari og höfundur fræðibóka.

Sigurður með gítarinn í jarðfræðiferð á fjöllum
Sigurður með gítarinn í jarðfræðiferð á fjöllum Ljósmynd/Óþekktur

Sigrún Helgadóttir hafði á orði snemma árs 2012, þegar öld var liðin frá fæðingu Sigurðar Þórarinssonar, að slæmt væri að ekki hefði verið skrifuð ævisaga hans. Sigurður Svavarsson útgefandi greip hugmyndina á lofti og óskaði eftir að hún tæki verkið að sér. Nokkur misseri liðu þó uns hún gat hellt sér í verkið.

Sigurður Svavarsson féll frá árið 2018 og þá varð um skeið óvissa um útgáfu. Svo fór að Hilmar Malmquist forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands – sem var bakhjarl Sigrúnar við bókarskrifin tók af skarið og gefur stofnunin ritið út. Það er í tveimur stórum og þykkum bókum, alls um 800 blaðsíður.

„Í raun var ekki hægt annað en heillast af þeim jákvæða persónuleika sem Sigurður var,“ segir Sigrún sem kynntist sögupersónunni lítið eitt þegar hún stundaði nám í jarðfræði við HÍ veturinn 1975-76. Hennar helsta viðkynning af viðfangsefni sínu var hins vegar í gegnum skráðar heimildir, það er bréf, dagbækur, minniskompur og frásagnir blaða á timarit.is. Einnig fékk Sigrún aðgang að ljósmyndum Sigurðar, þúsundum mynda af eldgosum, landslagi og fólki.

„Sigurður var brautryðjandi á mörgum sviðum jarðfræði á Ís-landi,“ segir …
„Sigurður var brautryðjandi á mörgum sviðum jarðfræði á Ís-landi,“ segir Sigrún sem var alls sjö ár að skrifa þetta mikla ritverk. mbl.is/Sigurður Bogi

Fyrirlestrar og söngtextar

Sigurður Þórarinsson var fæddur austur á Vopnafirði árið 1912 og ólst þar upp. Föður sinn missti hann ungur og aðstæður í uppvextinum voru um margt þröngar. Sigurður náði eigi að síður að brjótast til mennta og var dúx á stúdentsprófi frá MA vorið 1931. Fór síðan til náms í jarðfræði; fyrst í Kaupmannahöfn en lengst í Stokkhólmi. Átti þar góðan og gjöfulan tíma en árið 1945 sneri Sigurður heim, þá orðinn fjölskyldumaður, og ævistarfið tók við.

Sigurður var ásamt Finni Guðmundssyni fuglafræðingi fyrsti starfsmaður Náttúrugripasafns Íslands sem sinnti rannsóknum, söfnun náttúrugripa, sýningum, fræðslu og fleiru. Sigurður kenndi líka náttúrufræði, aðallega jarðfræði við MR.

Við hlið Surtseyjar kom upp í eldgosi eyjan Jólnir, sem …
Við hlið Surtseyjar kom upp í eldgosi eyjan Jólnir, sem sjór varreyndar ekki lengi að brjóta niður. Einstök mynd af eyjunni óvæntu. Ljósmynd/Sigurður Þórarinsson

Þá varð Sigurður vinsæll fyrirlesari bæði innan lands og utan. Einnig má nefna söngtexta hans, sem þjóðin þekkir enn vel en margir voru samdir í jöklaferðum Jöklarannsóknafélags Íslands og sungnir á skemmtikvöldum þess og Ferðafélags Íslands. Þekktir textar Sigurðar eru Að lífið sé skjálfandi lítið gras, Vorkvöld í Reykjavík, Þórsmerkurljóð, Spánarljóð og ótal fleiri.

Forvitnilegt og spennandi

„Bæði fræðistörfin og söngtextarnir juku hróður Sigurðar en ekki síður hve alþýðlegur hann var og ákaflega skemmtilegur,“ segir Sigrún. „Hann var ófeiminn við fjölmiðla, fór ungur að skrifa greinar í blöð og tímarit um allt mögulegt, bæði fræðigreinar og þá ekki síður greinar fyrir almenning um alls kyns fræði. Og hann fór líka snemma að flytja erindi í útvarp. Á þessum árum lásu allir blöð og hlustuðu á sama útvarpið. Hann varð eftirlæti fjölmiðlafólks. Var að fást við eitthvað sem var mörgum framandi en sagði þannig frá því að það varð forvitnilegt og spennandi. Heklugosið 1947-1948 olli straumhvörfum. Fólk hafði aldrei séð slíkt gos. hafði aldrei séð hraun renna og skildi ekki orsök eldgosa. Þá kynntist þjóðin Sigurði og svo lengi sem hann lifði var hann jú jarðfræðingurinn eini og sanni.“

Friðlýsingar og þjóðgarður

Auk jarðfræðistarfa lét Sigurður Þórarinsson mjög að sér kveða í félagsmálum. Sigrún getur í því sambandi fyrstu heildarlaga um náttúruvernd sem sett voru á Íslandi. Sigurði hafi runnið til rifja ýmis skemmdarverk á náttúrunni, svo sem framræsla á mýrum og eyðilegging á jarðmyndunum eins og gígum og flutti erindi í útvarp sem hafði mikil áhrif til verndunar.

„Við eigum engum sem Sigurði að þakka að Skaftafell var gert að þjóðgarði. Hann er nú mikilvægur hluti Vatnajökulsþjóðgarðs sem aftur hefur verið viðurkenndur á heimsminjaskrá UNESCO. Fjölmörg önnur svæði hafa verið friðlýst vegna tillagna þar um frá Sigurði,“ segir Sigrún.

Vísindamaðurinn ávann sér traust og virðingu tunglfara

Í bókinni sinni segir Sigrún Helgadóttir frá leiðsögn Sigurðar Þórarinssonar þegar kandídatar NASA, bandarísku geimvísindastofnunarinnar, komu til Íslands árin 1965 og 1967 til að æfa sig fyrir ferðir til tunglsins. Í þeim hópi var meðal annarra Neil Armstrong, sá sem fyrstur manna sté fæti á tunglið. Getur Sigrún þess að áður hafi Sigurður, það er í miðju kalda stríðinu, átt erfitt með að fá landgöngu í Bandaríkin vegna stjórnmálaskoðana sinna. Þegar þarna var komið sögu hafi hann hins vegar verið búinn að ávinna sér slíkt traust og virðingu sem vísindamaður að honum var falið að vera tunglförum til halds og trausts í svo mikilvægu máli Bandaríkjamanna sem Apollo-áætlunin um tunglferðir og landnám í geimnum var.

„Það kemur sjálfsagt mörgum ýmislegt á óvart við kynni af Sigurði í þessari bók. Hann virkaði svo glaður en í raun var hann feiminn og lokaður, ræddi ekki um sjálfan sig. Viðmælendur mínir höfðu líka sumir á orði að Sigurður hefði aldrei talað illa um nokkurn mann og vikið sér undan öllum deilum, svo stundum hafi verið gengið yfir hann. Auk þessa var hann ekki heilsuhraustur. En fáir vissu um erfiðleika hans, sáu aðeins glaðværa fræðimanninn og söngvaskáldið og hann naut ævinlega og alla ævi mikillar alþýðuhylli,“ segir Sigún Helgadóttir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert