Lokað í Bláfjöllum um helgina

Kátir gestir skíðasvæðisins í Bláfjöllum.
Kátir gestir skíðasvæðisins í Bláfjöllum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skíðasvæðið í Bláfjöllum er lokað í dag að því er fram kemur á heimasíðu svæðisins.

Opið var í Bláfjöllum í gær og í fyrradag og skíðatímabilið því formlega hafið. Um 2.500 manns gerðu sér ferð upp í Bláfjöll í gær og að sögn rekstrarstjóra skíðasvæðanna var færið með besta mögulega móti.

Viðraði vel til skíða framan af degi en þó tók að blása þegar líða fór að kvöldi. Útlit er fyrir að lokað verði um helgina. „Það vill enginn sitja í lyftu í 30m/sek.,“ sagði rekstrarstjóri Bláfjalla.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert