Grunaður um nauðgun og er á skilorði

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karlmaður á fertugsaldri sem grunaður er um að hafa nauðgað stúlku á unglingsaldri um síðustu helgi, er á skilorði eftir að hafa verið sakfelldur fyrir tilraun til kynferðislegrar áreitni gegn barni árið 2020. 

Fram kemur á vef Ríkisútvarpsins að maðurinn hafi viðhaft kynferðislegt orðbragð á samfélagsmiðli undir því skyni að hann væri 13 ára stúlka. 

Maðurinn hlaut tveggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir framferði sitt. 

Í því máli sem nú er til rannsóknar er maðurinn einnig grunaður um að hafa nýtt samfélagsmiðla til að eiga í samskiptum við stúlkuna, samkvæmt heimildum ríkismiðilsins. Hann er síðan grunaður um að hafa haldið stúlkunni fanginni og nauðgað henni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert