Jafnvægið milli Rúv og einkarekinna miðla ekki eins og best sé á kosið

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, segist vera á þeirri skoðun að jafnvægi milli Ríkisútvarpsins og einkarekinna fjölmiðla hér á landi sé ekki eins og best væri á kosið og að þeir fjármunir sem renni til Ríkisútvarpsins séu töluvert háir.

Að sögn Lilju Dagg­ar Al­freðsdótt­ur, ferðamála-, viðskipta- og menn­ing­ar­málaráðherra hafði 420 millj­óna króna aukið fjár­fram­lag til Rík­is­út­varps­ins ekki áhrif á skerðingu styrkja til einka­rek­inna fjöl­miðla. Hún seg­ir styrk­ina ekki tengda og að inn­byggt tekjumód­el Rúv hafi valdið þess­ari þróun.

Þess ber að geta að aukn­ing­in til Rík­is­út­varps­ins nem­ur meira fjár­magni en upp­hæðin sem all­ir einka­rekn­ir miðlar fá í sinn hlut sem er um 384 millj­ón­ir króna sam­tals.

Gerir ráð fyrir að umræðan haldi áfram á nýju ári

Þórdís segir að ræða þurfi frekar hvað sé hægt að gera til þess að koma á jafnvægi, eitt af því sem hefur verið rætt sé að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði. Hún segist gera ráð fyrir því að þessi umræða haldi áfram á nýju ári.

„Þetta mál hefur ekki verið sérstaklega rætt innan ríkisstjórnar, þetta er mál sem hefur verið rætt innan þingflokksins og það kemur kannski ekki á óvart að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins setur spurningamerki við þetta jafnvægi á milli Ríkissútvarpsins og einkarekinna fjölmiðla,“ Segir Þórdís.

„Við vitum að staða einkarekinna fjölmiðla er ekki eins og best verður á kosið og það eru margar mismunandi leiðir sem hægt er að fara til þess að bæta það, en þar eru mjög rík sjónarmið um að jafnvægið þurfi að vera meira en nú er.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert