Hvorki opnað á Uber né Lyft – ESA áminnir Ísland

Ísland er að færast í áttina að frjálsari leigubílamarkaði, eftir …
Ísland er að færast í áttina að frjálsari leigubílamarkaði, eftir fjölda áminninga frá ESA og úrskurð Samkeppniseftirlitsins. mbl.is/​Hari

Frumvarp sem heimila átti þjónustu farveitna á borð við Uber og Lyft hefur ekki enn litið dagsins ljós – vegna þessa áminnti ESA, eftirlitsstofnun EFTA, Ísland og gaf því tvo mánuði til þess að grípa til aðgerða, í nóvember síðastliðnum. 

Málið verður endurflutt í janúar samkvæmt þingmálaskrá forsætisráðherra, sem er nokkurn veginn í samræmi við þann frest sem stjórnvöldum er gefinn. Verði málið afgreitt í janúar gæti frjálsari leigubílamarkaður loks verið í sjónmáli.

Hreyfill fær skammir frá Samkeppniseftirlitinu og Parka keyrir af stað

Þótt lögin heimili ekki notkun farveitnanna enn með skýrum hætti hefur fyrirtækið Parka keyrt af stað starfsemi sem svipar til erlendu leigubílarisanna og býður notendum upp á að starfa sem sjálfstæðir leigubílstjórar hjá fyrirtækinu.

Þetta byggir fyrirtækið einkum á úrskurði Samkeppniseftirlitsins, frá nóvember 2020, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að Hreyfill hafi sýnt af sér samkeppnishamlandi háttsemi þegar félagið meinaði bílstjórum sínum að skrá sig sem bílstjóra hjá appinu Drivers. 

Sendi framkvæmdastjóri og stjórn Hreyfils þá kaldar kveðjur til bílstjóra Hreyfils, svohljóðandi:

„Verði bílstjórar uppvísir að því að nota Drivers appið til að taka við ferðum verður litið þannig á það að viðkomandi bílstjóri sé ekki í þjónustu á Hreyfli og verður lokað tafarlaust á viðkomandi. Stjórn og Framkvæmdastjóri“.

Ívar Freyr Sturluson, markaðs- og sölustjóri Parka, segir mikilvægt að …
Ívar Freyr Sturluson, markaðs- og sölustjóri Parka, segir mikilvægt að leigubílstjórar séu meðvitaðir um rétt sinn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bílstjórar geti í krafti fjöldans starfað undir annarri leigubílastöð

Svo fór að Parka app ehf. keypti allt hlutafé í félaginu Drivers ehf, sem hélt úti samnefndu leigubílaappi og býður Parka nú notendum upp á að bóka næsta lausa leigubíl með einföldum hætti í gegnum Parka-appið.

Ívar Freyr Sturluson, markaðs- og sölustjóri Parka Lausna ehf., segir í samtali við mbl.is mikilvægt að löggiltir leigubílstjórar séu meðvitaðir um rétt sinn og í krafti fjöldans geti þeir starfað undir fleiri en einni leigubílastöð.

„Þeir geta allir sameinast undir góðu íslensku appi og sinnt þörfum notandans. Við erum að vinna fyrir bílstjórana, sem er kannski það sem stöðvarnar hafa ekki verið að gera undanfarið,“ segir Ívar. Bílstjórar geti til að mynda stjórnað ferðum sínum betur og aukið þannig tekjur sínar. 

Hafa ekki miklar áhyggjur af Uber

Verði löggjöfin bætt og frelsi á leigubifreiðamarkaði tryggt gætu risar á borð við Uber og Lyft sannarlega rutt sér rúms á Íslandi og sópað til sín bílstjórum. Ívar er bjartsýnn og virðist ekki hafa miklar áhyggjur af slíku.

„Það sem er svo mikilvægt í þessu er að þetta þarf að gerast í krafti fjöldans hvað varðar bílstjórana, þeir þurfa bara að muna að þeir eru sjálfstæðir og þeir eiga rétt að að finna sér eins mikla vinnu og þeir geta.“

„Við höfum farið af stað og búið til gott íslenskt app fyrir íslenska leigubílstjóra. Þeir væru meira varðir gagnvart því ef frumvarpið verður þannig að það opnar á allt saman og uber gæti komið til landsins. Ef það er íslenskt app til staðar með flestalla leigubílstjóra þá á svona risafyrirtæki eins og Uber engan séns.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert