Frumvarp Sjálfstæðismanna „sérviska jaðarhóps“

Frá miðstjórnarfundi ASÍ í gær.
Frá miðstjórnarfundi ASÍ í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir mikilli furðu á frumvarpi þingmanna Sjálfstæðisflokksins um félagafrelsi á vinnumarkaði, er kemur fram í ályktun miðstjórnar sambandsins. 

Miðstjórn ASÍ, kom, líkt og greint hefur verið frá, saman í gær í fyrsta skipti eftir að veruleg átök brutust út á þingi ASÍ, sem síðan var frestað. 

Fram kemur í ályktun miðstjórnarinnar að á Íslandi ríki félagafrelsi og að verkalýðshreyfingin hafi engan hug á að láta sérvisku jaðarhóps stjórnmálamanna hafa áhrif á kjarnastarfsemi sína. 

Aðför sem verður svarað

Enn fremur er sett út á tímasetningu framlagningar frumvarpsins: 

„Tímasetning umfjöllunar Alþingis um frumvarpið er mjög sérstök, nú þegar nokkrir dagar eru í að allir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði losna og viðræður þegar hafnar. Við þau tímamót er frumvarpinu hleypt á dagskrá þingsins og umsagna krafist frá verkalýðshreyfingunni innan tveggja vikna. Ljóst er þessari aðför verður svarað af samhentri og sameinaðri verkalýðshreyfingu enda ráðist að tilverurétti sterkra stéttarfélaga. Augljóst virðist að stjórnvöld ætla að leiða hjá sér vaxandi og alvarlegan afkomuvanda launafólks og þekkja þá lausn eina að hækka álögur á heimilin í landinu og ráðast gegn verkalýðshreyfingunni,“ segir í ályktuninni. 

Þingmenn beini kröftum sínum annað

Þá er frumvarpinu líkt við breska nýfrjálshyggju. „Betur færi að þingmenn axli þá ábyrgð sem starfi þeirra fylgir og leitist við að létta byrðar almennings í ríkjandi afkomukreppu. Miðstjórn Alþýðusambands Íslands hvetur því þingflokk sjálfstæðismanna til að beina kröftum sínum að uppbyggilegri verkefnum í stað þess að fylkja sér undir grunnfána lúinna baráttumála.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert