Enn er einn í gæsluvarðhaldi vegna stunguárásarinnar á skemmtistaðnum Bankastræti Club aðfaranótt 18. nóvember. Gæsluvarðhaldið yfir honum rennur út 22. desember.
Að sögn Margeirs Sveinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er málið enn í rannsókn og verið er að skoða tilefni þess að árásin átti sér stað.
Hann segir rannsóknina ganga vel. „Þetta stefnir allt í rétta átt.“
Árás með eggvopnum var gerð á skemmtistaðnum þegar fjöldi grímuklæddra manna þusti inn á staðinn og særði þrjá einstaklinga.