Fimm hafa nú verið ákærðir vegna hópslyssins sem varð af því að hoppukastali tók á loft á Akureyri sumarið 2021. Eru einstaklingarnir ákærðir fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi. Forseti bæjarstjórnar á Akureyri er meðal sakborninga. Ríkisútvarpið greinir frá.
Slysið sem um ræðir átti sér stað 1. júlí árið 2021. Tíu börn slösuðust, þar á meðal sex ára stelpa sem hlaut alvarlega áverka.
Saksóknari höfðar málið þó vegna meiðsla fjögurra barna. Tveggja sem handleggsbrotnuðu, eins sem braut herðablað og eins sem hlaut alvarlega áverka.
Rannsókn á slysinu leiddi í ljós að hoppukastalinn hafi ekki verið nógu vel festur við jörðu. Samkvæmt frétt Ríkisútvarpsins báru ákærðu með einum eða öðrum hætti ábyrgð á öryggi barnanna.