Sigmar kjörinn fyrsti ritari Viðreisnar

Sigmar Guðmundsson.
Sigmar Guðmundsson. Ljósmynd/Aðsend

Nýju forystuembætti ritara hefur nú verið komið á innan Viðreisnar, til viðbótar við formann og varaformann, en fundargestir á landsþingi kusu stjórn félagsins. 

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var endurkjörin formaður Viðreisnar. Daði Már Kristófersson var einnig endurkjörinn varaformaður en á móti honum gaf kost á sér Erlingur Sigvaldason, forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar.

Í nýtt embætti ritara var kjörinn Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi. 

„Ég hef óbilandi trú á að það séu mikil tækifæri til staðar í íslensku samfélagi fyrir frjálslyndan flokk eins og okkar. Ekki síst núna þegar fjölskyldur og fyrirtæki finna illa fyrir því að það er ekki heppilegt að vera á myntsvæði sem telur jafn margt fólk og býr í borginni Wuppertal í Þýskalandi“ er haft eftir Sigmari í fréttatilkynningu frá Viðreisn. 

Hér má sjá hina nýkjörnu stjórn flokksins.
Hér má sjá hina nýkjörnu stjórn flokksins. Ljósmynd/Viðreisn

Stjórn og málefnaráð

Þá kusu fundargestir sér fjögurra manna stjórn og fimm manna málefnaráð.

Til stjórnarsetu voru kjörin Jón Steindór Valdimarsson, Thomas Möller, Sara Dögg Svanhildardóttir og Elín Anna Gísladóttir. Varamenn í stjórn voru kjörin Natan Kolbeinsson og Kamma Thordarson.

Málefnaráð Viðreisnar skipa, að loknum landsþingi, Pawel Bartoszek, Eyþór Eðvarðsson, Hildur Bettý Kristjánsdóttir, Lilja G. Karlsdóttir, Oddný Arnarsdóttir og Friðrik Sigurðsson. Til vara voru kjörnir Máni Þór Magnason og Þröstur V. Söring.

Forysta, stjórn og málefnaráð eru kjörin til tveggja ára í senn og munu því gegna sínum störfum fram að næsta landsþingi sem verður haldið 2025.

Frá landsþingi Viðreisnar.
Frá landsþingi Viðreisnar. mbl.is/Óttar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert