Vonast til að geta slökkt eldinn á morgun

Settar hafa verið upp sérstakar varnarlínur til að takmarka útbreiðslu …
Settar hafa verið upp sérstakar varnarlínur til að takmarka útbreiðslu brunans. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fjórir slökkviliðsmenn munu vakta sinu­brunann í Hafnafirði í nótt. Settar hafa verið upp sérstakar varnarlínur til að takmarka útbreiðslu brunans.

„Það er líka einn gamall slóði þarna niður og við ætlum að reyna taka þetta þar. Það er vonlaust að vera þarna um allt hraunið með slöngur og dót,“ segir varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborg­ar­svæðinu í sam­tali við mbl.is.

Bruninn kom upp vest­an við ál­verið í Straums­vík fyrr í dag. Maður sem kveikti á kúlu­blysi olli skaðanum.

„Já ég ætla að vona það,“ segir varðstjórinn spurður hvort hann búist við því að slökkviliðið muni ná að slökkva eldinn á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert