Geðlæknir sem kom að máli Magnúsar Arons Magnússonar, sem ákærður er fyrir að hafa orðið Gylfa Bergmann Heimissyni að bana í Barðavogi í júní á síðasta ári, segir Magnús hafa haft mikinn áhuga á seinni heimstyrjöldinni, kommúnisma og nasisma.
Segir hann að úr samtölum sínum við hann og fjölskyldu hans hafa greint áhuga á bæði kynþáttafordómum og kvenfyrirlitningu.
Tómas Zoëga geðlæknir gaf skýrslu í Barðavogsmálinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Tómas hitti ákærða fyrst 6. júní, tveimur dögum eftir að atvikið átti sér stað, og kom svo síðar einnig að geðmati á ákærða.
Í samantekt um greinargerð sína um ákærða segir Tómas að Magnús hafi verið sérkennilegur í háttum og strax minnt hann á einstakling með einhverfu. Í sögu hans hafi komið fram að hann hafi hitt sálfræðing á vegum félagsþjónustunnar þegar hann var tólf ára. Sálfræðingurinn mat það svo að Magnús þyrfti á frekari aðstoð að halda og mælti með að hann myndi sækja hana hjá Barna- og unglingageðdeild Landspítala.
Faðir ákærða hafi komið í veg fyrir það. Á unglingsárum Magnúsar hefðu foreldrar hans skilið og átt í heiftúðlegum deilum um forræði yfir honum.
Þegar hann var í unglingavinnu hafi hann lent upp á kant og verið rekinn þaðan. Hann hafi ekki stundað vinnu síðan. Tómas segir samskipti Magnúsar hafa verið óeðlileg, sérstaklega á seinni hluta grunnskólagöngunnar.
Hann sé bærilega vel greindur og hafi gengið vel í skóla framan af grunnskóla, þó ekki hafi hann eignast vini.
Í viðtölum við ákærða hafi alltaf verið tveir til þrír fangaverðir til taks því hann upplifði sig ekki öruggann í návist hans. „Það var óþægilegt að tala við hann. Hann var hálfógnandi. Kom með sérkennileg komment, en ekki tengd ranghugmyndum eða slíku,“ sagði Tómas.
Hann sagði vanta töluvert upp á að Magnús lifði eðlilegu lífi. Hann byggi heima hjá móður sinni, en að þau töluðust lítið við. Magnús væri vakandi á nóttunni og gengi um borgina á nóttunni.
Hann ætti enga vini, nema tvo tölvuvini búsetta í Bandaríkjunum og Kanada. Þá væri hann tortrygginn að eðlisfari, en hvorki með alvarlegar paranojuhugmyndir á grunni geðrofshugmynda né með ranghugmyndir.
„Hann var upptekinn af kommúnisma, nasisma, kynþáttafordómum sem fór dálítið út í öfgar,“ sagði Tómas.
Hann sagði miður að Magnús hefði ekki fengið aðstoð sem barn, og á unglingsárum hefði honum ekki heldur verið veitt aðstoð og í raun komið í veg fyrir slíkt. Hann benti einnig á að Magnús hefði á seinni árum ekki sóst sjálfur eftir því. Sennilega hafi hann ekki haft innsýn inn í eigin vandamál eða áttað sig á að hann glímdi við vanda.
Spurður af hverju Magnús hefði brugðist við eins og hann gerði kvöldið örlagaríka í júní 2022 sagð hann líklegt að eitthvað hefði raskað ró Magnúsar, líklegast að móðir hans væri ekki heima.
Móðir hans hafði fengið hjartaáfall tveimur dögum áður og var lögð inn á spítala. Þar lá hún og var í aðgerð þegar atvikið átti sér stað. Magnús hafi ekki verið vanur að vera einn heima, og ekki svo lengi. Hann hafi því mögulega verið kvíðinn og stressaður.