Landsvirkjun lýsir vonbrigðum

Landsvirkjun lýsir yfir vonbrigðum.
Landsvirkjun lýsir yfir vonbrigðum. Tölvumynd/aðsend

Landsvirkjun lýsir miklum vonbrigðum með ákvörðun úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um framkvæmdaleyfi í Hvammsvirkjun. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Líkt og mbl.is greindi frá fyrr í dag hefur nefndin ákveðið að fella leyfið út gildi. Telur hún Orkustofnun hafa farið á svig við lög þegar virkjanaleyfið fyrir Hvammsvirkjun var gefið út.

Kom á óvart

Í tilkynningunni segir að Landsvirkjun muni nýta næstu daga til að meta hvað úrskurðurinn felur í sér og hversu mikil áhrif hann hefur á verkefnið. 

Þar segir einnig að ákvörðunin kom á óvart vegna þess að öllum leiðbeiningum Orkustofnunar hafi verið fylgt í einu og öllu. 

Tilkynning Landsvirkjunar:

„Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi í dag úr gildi ákvörðun Orkustofnunar frá 6. desember 2022, um veitingu virkjanaleyfis fyrir Hvammsvirkjun.

Landsvirkjun mun leggja mat á það næstu daga hvað úrskurðurinn felur í sér og hversu mikil áhrif hann hefur á verkefnið.

Úrskurðurinn kemur nokkuð á óvart vegna þess að leiðbeiningum Orkustofnunar um umsókn um virkjanaleyfi hefur verið fylgt í einu og öllu. Landsvirkjun gerir ráð fyrir að fá frekari leiðbeiningar frá Orkustofnun um næstu skref.

Mögulega seinkar þessi ákvörðun framkvæmdinni eitthvað. Það væru slæmar fréttir fyrir íslenskt samfélag sem stefnir að orkuskiptum en skortur á endurnýjanlegri orku er fyrirsjáanlegur á næstu árum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert