Sigurður Gísli Björnsson, fyrrverandi eigandi og framkvæmdastjóri Sæmarks-Sjávarafurða, neitaði sök fyrir héraðsdómi í dag í svokölluðu Sæmarks-skattamáli.
Sigurður mætti til þingfestingar með Þorstein Einarsson lögmann sér til fulltingis. Auk hans mætti annar meðákærði í málinu, en aðeins lögmaður þess þriðja.
Sigurður neitaði alfarið sök bæði fyrir hönd ákærða HK68 ehf. (áður Sæmark-Sjávarafurðir), sem framkvæmdastjóri félagsins og vegna sakarefna sem snúa að hans eigin persónu. Meðákærði í málinu neitaði þá einnig alfarið sök.
Verjendur áskildu sér rétt til að skila greinargerð og óskuðu þeir eftir átta vikna fresti til þess. Dómari ákvað í kjölfarið að fresta þinghaldi fram til 15. desember.
Sigurður var ákærður ásamt tveimur öðrum mönnum í stórfelldu skattalagabroti sem tengist rekstri fiskútflutningsfyrirtækisins Sæmarks-Sjávarafurðum ehf. á árunum 2010 til 2017.
Sigurður er eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins en hann er ákærður fyrir að hafa komist hjá því að greiða tæplega hálfan milljarð króna í skatta eftir að hafa tekið tæplega 1,1 milljarð út úr rekstri félagsins og komið fyrir í aflandsfélögum sem hann átti.
Þá er hann einnig sagður hafa komist hjá því að greiða samtals yfir 100 milljónir í skatta í tengslum við rekstur Sæmarks með því að hafa vanframtalið tekjur félagsins og launagreiðslur starfsmanna upp á samtals 1,1 milljarð og þar með komist hjá því að greiða 81,8 milljónir í tryggingagjald.
Hinir mennirnir tveir eru ákræðir fyrir að hafa aðstoðað Sigurð Gísla við brot sín meðal annars með útgáfu rangra og tilhæfulausra sölureikninga
Þess er krafist að bæði Sigurður og hinir mennirnir tveir verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Þá er krafist upptöku á jafnvirði rúmra 13 milljóna króna á bankareikningum Sæmarks-Sjávarafurða.
Þetta er ekki fyrsta málið sem tengist Sæmarki en árið 2019 var útgerðarmaður dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 36 milljónir í sekt í tengslum við skattalagabrot og peningaþvætti í tengslum við útgáfu rangra reikninga á hendur Sæmarki í þeim tilgangi að taka fjármuni úr félaginu í eigin þágu.