Sigdalurinn í Grindavík heldur áfram að síga

Horft yfir sprunguna á eystri mörkum sigdalsins.
Horft yfir sprunguna á eystri mörkum sigdalsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

GPS-mælar í og við Grindavík, nærri miðju sigdalsins sem myndaðist þar aðfaranótt laugardags eða tók að dýpka verulega, sýna nú að sigið í dalnum nemur um 3-4 sentimetrum á sólarhring.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni.

Hægir á siginu

Greint var frá því í gær að sigið næmi 5 sentimetrum á sólarhring.

Sigdalurinn yfir kvikuganginum þykir því enn virkur, þó svo að mælingar sýni að það hafi hægst örlítið á siginu á milli daga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert