Exit og Nýju vínbúðinni lokað líka

Sverrir Einar Eiríksson og Vesta Minkute eru eigendur B5 sem …
Sverrir Einar Eiríksson og Vesta Minkute eru eigendur B5 sem áður hét B. Sverrir er eigandi Nýju vínbúðarinnar, Exit og Brim hótels.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu innsiglaði skemmtistaðinn Exit og Nýju vínbúðina fyrr í dag. Eins og fram hefur komið innsiglaði lögregla einnig skemmtistaðinn B5 við Bankastræti 5 í dag.

Allar rekstrareiningarnar eiga það sameiginlegt að vera í eigu Sverris Einars Eiríkssonar.

Nýja vínbúðin er netverslun með áfengi og hefur hún verið rekin í sama húsnæði og Brim hótel sem einnig er í eigu Sverris. Hótelinu var ekki lokað. 

Að sögn Unnars Más Ásþórssonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, var starfsfólk að störfum í Nýju vínbúðinni þegar lögreglu bar að garði og var þeim vísað frá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert