Geir G. Geirsson, forstjóri hjá Stjörnugrís segir ekkert hægt að segja til um það hvers vegna listería hefur borist tvívegis í brauðskinku fyrirtækisins á skömmum tíma. Í raun er eingöngu um að ræða grun um smit en fyrirtækið taki enga áhættu og kalli inn alla skinku.
Fyrr í dag var send út innköllunartilkynning þar sem fólk var beðið um að neyta ekki brauðskinku frá fyrirtækinu, skila henni í næstu verslun eða henda í ruslið vegna gruns um listeríusmit.
Þetta er í annað skiptið á tveimur mánuðum þar sem fyrirtækið innkallar brauðskinku af þessu tilefni.
„Þetta er bara umhverfisbaktería sem er úti um allt. Svo er bara spurning hvernig þetta berst í matvæli og það eru margar leiðir til þess,“ segir Geir.
Hann segir að við sýnatöku hafi fundist lítið sem ekkert magn og að litlar líkur séu á veikindum. Engu að síður sé slíkt tilkynningarskylt og fyrirtækið vilji sýna ábyrgð í verki.
„Þetta er sótthreinsað og sýni tekin ítrekað en svona getur samt alltaf gerst. Þetta eru fyrstu tvö tilvikin þegar kemur að skinkunni,“ segir Geir.