Engin annarleg sjónarmið að baki

María Sigrún Hilmarsdóttir og Heiðar ÖRn Sigurfinnsson.
María Sigrún Hilmarsdóttir og Heiðar ÖRn Sigurfinnsson. Samsett mynd/Aðsend/mbl.is/Sigurður Bogi

Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri Rúv, segir í Facebook-færslu að fréttaskýring Maríu Sigrúnar Hilmarsdóttur fréttamanns hafi ekki verið fullbúin til sýningar og því ekki sýnd í síðasta þætti Kveiks þennan vetur. Engin annarleg sjónarmið hafi búið að baki. 

Færsluna ritar Heiðar Örn í ljósi umfjöllunar Vísis um að krafta Maríu Sigrúnar væri ekki lengur óskað í Kveik. 

Hún birti meðal annars mynd á X af þáttastjórnendum Kveiks og hafði tekið sjálfa sig af myndinni. 

Boðið að sýna skýringuna í Kastljósi

Í dag og í gær hafa birst fréttir þess efnis að fréttaskýring sem var í vinnslu fyrir fréttaskýringaþáttinn Kveik og átti að sýna síðasta þriðjudag hafi verið tekin af dagskrá og jafnframt látið að því liggja að annarleg sjónarmið búi að baki. Það á ekki við nein rök að styðjast,“ segir í færslu Heiðars Arnar. 

Hann segir að fréttaskýringin hafi verið unnin um skeið en ekki verið tilbúin til sýningar og því buðu stjórnendur fréttastofu Rúv að fréttaskýringin yrði sýnd í Kastljósi ef næðist að klára hana. 

Að öðru leyti mun ég ekki tjá mig um þetta starfsmannamál eða vitna í trúnaðarsamtöl.“

Í samtali við mbl.is í gær staðfesti Heiðar Örn að María Sigrún væri ekki lengur í ritstjórn Kveiks. 

Þá greindi hann frá breytingum á skipulagi fréttadeildar Rúv. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert