Tveir á sjúkrahús eftir að buggy bíll valt

Tveir voru fluttir með sjúkrabíl eftir að böggí-bíll valt.
Tveir voru fluttir með sjúkrabíl eftir að böggí-bíll valt. mbl.is/Hari

Flytja þurfti tvo á sjúkrahús eftir að buggy bíll valt nálægt flugvellinum við Sandskeið síðdegis í dag. 

Þetta staðfestir Bjarni Ingimarsson, varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.

Slökkviliðinu barst tilkynning um slysið um kl. 17.30 í dag. 

Sandskeið er suðaustur af Reykjavík, á leiðinni til Hveragerðis.
Sandskeið er suðaustur af Reykjavík, á leiðinni til Hveragerðis. map.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert