Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis, en þar er ákært fyrir meinta markaðsmisnotkun og umboðssvik fyrir hrun bankans. Ákærðir í málinu samkvæmt eru Lárus Welding, fyrrum bankastjóri Glitnis, Jóhannes Baldursson, fyrrum framkvæmdastjóri markaðsviðskipta, auk þeirra Jónasar Guðmundssonar, Valgarðs Más Valgarðssonar og Péturs Jónassonar sem voru starfsmenn bankans.