Elva Dögg Gunnarsdóttir og Gunnar Hrafn Jónsson trylltu lýðinn á úrslitakvöldi keppninnar um Fyndnasta mann Íslands. Þau voru meðal fimm keppenda á úrslitakvöldinu en áður hefur verið sýnt frá hinum þremur.
Elva Dögg fjallar meðal annars um að Tourette hafi ekki alltaf verið eins töff og í dag auk þess sem hún kynnir nýja uppfinningu, Buddubrókina. Gunnar Hrafn mælir fyrir því að mótorhjólasamtök verði nýir verndarar Sólheima og leggst í greiningar á markhópnum fyrir klósettpappír.