mbl | sjónvarp

„Vildi ekki kyssa kærusturnar“

INNLENT  | 5. mars | 22:06 
Það kom fáum á óvart þegar Guðmundur Smári kom út úr skápnum. ,,Smári minn, ertu viss um að þú sért ekki bara hommi?" spurði mamma hans hann þegar hann var sextán ára. Fyrsta kærastan hætti svo með honum af því að hann vildi ekki kyssa hana.

Það kom fáum á óvart þegar Guðmundur Smári kom út úr skápnum. „Smári minn, ertu viss um að þú sért ekki bara hommi?“ spurði mamma hans hann þegar hann var sextán ára. Fyrsta kærastan hætti svo með honum af því að hann vildi ekki kyssa hana. „Þannig að ég hef alltaf verið hommi,“ segir Smári sem segir sögu sína í þættinum Út úr skápnum hér á MBL Sjónvarpi.

Út úr skápnum
Að koma út úr skápnum er í senn ein erfiðasta og besta lífsreynsla sem fólk stendur frammi fyrir. Í þættinum Út úr skápnum kynnumst við sögu fólks sem hefur kynnst þessu af eigin raun og þeirri gleði, sorg og áhyggjum sem þessari ákvörðun fylgir.

Mest skoðað

Loading