Borgarhátíðir eru sterkastar utan háannar og þær hafa svipað aðdráttarafl og norðurljósin. Þetta segir Einar Bárðarson, forstöðumaður Höfuðborgarstofu, en hann segir að þegar margar slíkar hátíðir séu haldnar á ári hverju, þá sjái ferðamenn borgina sem áhugaverðan viðkomustað. Í þættinum Viðskipti með Sigurði Má segir hann að með öflugu mannlífi, menningu og hátíðum geti ferðamenn verið vissir um að detta alltaf niður á áhugaverða viðburði. Nú um helgina fer fram menningarnótt, en það er stærsti einstaki viðburður Höfuðborgarstofu á árinu.
Einar segir að með borgarhátíðum verði Reykjavík einnig að áhugaverðum áfangastað fyrir ráðstefnur, en með öflugum hátíðum sjái ráðstefnuhaldarar að öflugt mannlíf sé ekki bara í orði, heldur á borði. Hann segir þó vera vöntun á fimm stjörnu hóteli, en slíkt myndi draga að fleiri stórar ráðstefnur, sem í dag horfi alveg framhjá Reykjavík.