Sjóbleikjan mætt fyrir norðan

Kyssa og sleppa, kallar Steingrímur Sævarr Ólafsson þessa mynd. Þessi …
Kyssa og sleppa, kallar Steingrímur Sævarr Ólafsson þessa mynd. Þessi sjóbleikja fékk að fara aftur í Ólafsfjarðará. Ljósmynd/Aðsend

Sjóbleikjan fyrir norðan er mætt. Árnar í Eyjafirði og á Tröllaskaga eru komnar vel í gang og þar er ágætisveiði. Steingrímur Sævarr Ólafsson er í dag að veiða Ólafsfjarðará og hefur undanfarna daga veitt Eyjafjarðará, Svarfaðardalsá, Hörgá og Héðinsfjarðará. Hann segir bleikju komna í allar árnar og hún sé þegar orðin nokkuð dreifð en vonast eftir nýrri sendingu á næsta flóði. „Bleikjan er vel haldin, hún er væn og hún er í tökustuði,“ sagði Steingrímur í samtali við Sporðaköst.

Stærsta bleikjan sem Denni, eins og hann er oft kallaður, hefur fengið í þessum túr er 65 sentimetra bleikja sem hann veiddi í Svarfaðardalsá. „Svo náði ég einni 57 sentimetra í Hörgá og það þótti mér mjög vænt um. Ég sleppi mestu af því sem ég er að veiða. Fjölskyldunni finnst reyndar nóg um og langar í meiri bleikju, en ég tek aldrei meira en ég torga,“ sagði Steingrímur. Hann var í hléinu að undirbúa sig fyrir seinni vaktina í Ólafsfjarðará.

Við Hörgá að íhuga hvort hann eigi að halda áfram …
Við Hörgá að íhuga hvort hann eigi að halda áfram með Pheasant tail. Ljósmynd/Aðsend

Lax tók bleika Stirðu

„Mér finnst hún svakalega skemmtileg. Þar er ekki stærsta bleikjan eða fallegasta landslagið, en hún hefur eitthvað sem togar alltaf í mig.“ Hann setti í lax í Ólafsfjarðaránni í morgun en sá sleit grannan silungatauminn eftir fimmtán mínútur. „Það er óvenjulegt að ég veit um tvo aðra veiðimenn sem eru búnir að setja í laxa í ánni. Vanalega eru menn ekki að setja í laxa fyrr en undir loks sumars. Ætli þetta sé ekki alltaf sami fiskurinn,“ sagði hann sposkur. Laxinn tók bleika Stirðu og Denni vill gjarnan fá hana aftur ef einhver landar laxi með slíkri flugu í Ólafsfjarðará.

Hann veiðir þessar ár andstreymis og með dropper. Hann er með Pheasant tail og Héraeyra sem dropper. Denni telur þetta bestu blönduna. Svo hefur Stirða líka verið að gefa honum veiði, sérstaklega í Svarfaðardalsá og er líka skæð í Ólafsfjarðaránni.

Bleik Stirða. Virkar vel í Svarfaðardalsá og líka skæð í …
Bleik Stirða. Virkar vel í Svarfaðardalsá og líka skæð í Ólafsfjarðaránni. Ljósmynd/Aðsend

Nálgast árnar öðruvísi

„Árnar eru vatnsmeiri en almennt gerist á þessum árstíma og maður hefur þurft smá lagni við þetta. Veiðistöðunum hefur fækkað og ég hef reynt að nálgast árnar hreinlega eins og ár sem maður hefur ekki veitt áður, því oft eru hefðbundnir tökustaðir of stríðir. Þá þarf maður að lesa vatnið og kasta á staði sem manni líst vel á. Það er svo sterkur í manni vaninn og við þessar aðstæður þarf að komast út úr honum. Þetta hefur í það minnsta gefist mér vel. Mér verður í þessu samhengi hugsað til þess sem Kolbeinn Grímsson heitinn sagði. Fiskurinn veit ekkert hvar þessar merkingar eru uppi á landi.“

Vænar bleikjur úr Hörgá sem Denni veiddi í vikunni.
Vænar bleikjur úr Hörgá sem Denni veiddi í vikunni. Ljósmynd/Aðsend

Steingrímur hefur veitt á svæði fjögur í Eyjafjarðará undanfarin ár. Honum finnst veiðistöðum hafa fækkað og horfir þá til aurskriðunnar miklu sem féll árið 2011. „Mér finnst eins og aurinn sé að berast niður eftir ánni og fylla í veiðistaði. Þetta er alla vega mín upplifun. Þar sem ég fann hana uppi á fjórða svæði var mjög flottur og silfraður fiskur og það er alltaf jafngaman að takast á við drottningarnar í Eyjafjarðará.“

Hann telur mjög mikilvægt að veiðimenn gangi um þessar perlur af virðingu og nærgætni og taki sér bara nóg til matar. „Fínt að taka bara góða selfí en ekki láta þær lenda neðst í frystikistunni.“

Þar með var Denni rokinn á uppáhaldssvæðið sitt í dag, Ólafsfjarðará.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert