Sæmilegt í Geirlandsá

Valgarð Ragnarsson með 83 cm sjóbirting sem veiddist á dögunum …
Valgarð Ragnarsson með 83 cm sjóbirting sem veiddist á dögunum í Húseyjarkvísl í Skagafirði. Þar hafa veiðst í kringum 200 laxar til viðbótar við góða sjóbirtingsveiði og margir 83-90 cm komið þar á land í sumar. Aðsend

Talsvert mikið af sjóbirtingi hefur verið það sem af er hausti í Vatnamótunum í Skaftá, skammt austur af Kirkjubæjarklaustri, sem virðist þó skila sér síður upp í bergvatnsárnar.

Að sögn Óskars Færseth hjá Stangveiðifélagi Keflvíkinga, sem leigir nokkur sjóbirtingssvæði í bergvatnsánum þar eystra, þá hefur veiðin í Geirlandsá varla verið meira en sæmileg það sem af er. Hollin hafa verið að fá 6 til 17 birtinga og því engin sprengjuveiði enn sem komið er.  Holl sem lauk veiðum í fyrradag endaði með 17 birtinga, allt að 12 punda fiska.

Óskar sagði að það sem þyrfti væri að fá alvöruvatnsveður og flóð svo áin færi á yfirfall því þá ryðst fiskurinn oft upp úr Vatnamótunum og veiðin eykst, sérstaklega þegar áin fellur aftur. 

Sömu sögu væri að segja frá Fossálnum þar sem enn þá hefur verið frekar rólegt fram að þessu. Hópur veiðimanna sem lauk veiðum þar í vikunni fékk 7 birtinga eftir tveggja daga veiði. 

Eins væri með Flóðið svokallaða í Grenlæk þar sem hefur verið mjög rólegt enn sem komið er og voru til dæmis veiðimenn sem luku þar tveggja daga veiði nú í vikunni sem höfðu aðeins tvo birtinga upp úr krafsinu.

Heilt yfir væri því búið að vera heldur rólegt en opið verður til 20. október og því væru ekki öll kurl enn komin til grafar.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert