Laxveiðiárnar Blanda og Jökla eru nú báðar komnar á svokallað yfirfall og vart veiðanlegar lengur. Hálslón sem Jökla kemur úr er orðið fullt og þá streymir jökulvatnið um farveginn og laxveiði ekki fýsilegur kostur í beljandi jökulvatninu. Góður gangur hefur verið í laxveiðinni í Jöklu í sumar og því einkar svekkjandi fyrir aðdáendur hennar að hún skuli dottin út. Þá mun að sama skapi Stuðlagil taka stakkaskiptum þegar hækkar í ánni og blágræni liturinn verður jökullitaður.
Síðasti veiðidagur í Jöklu var eins og þeir sem voru á undan virkilega góðir. Áin endaði í 795 löxum, miðað við þetta. En áfram verður veiði í hliðarám Jöklu og árósum þeirra þannig að það er nánast öruggt að Jökla slái fyrra met, sem 815 laxar.
„Metið fellur örugglega. Það hafa verið hundrað laxa vikur alla þessa vertíð nema fyrsta vikan í júlí. En í síðustu viku veiddist mest í Jöklu tvö og er mikið af laxi komið þangað upp eftir. Og það var enn að ganga lax þegar yfirfallið skall á,“ sagði Þröstur Elliðason leigutaki í samtali við Sporðaköst í kvöld.
„Einn af síðustu löxunum sem landað var áður en yfirfallið kom var hundrað sentímetra hængur sem veiddist í Drjúgbeit. Jón Már Jónsson landaði þessu fiski og konan hans fékk 88 sentímetra hrygnu. Þetta glæsilega par fór í kistu og mun nýtast vel,“ sagði Þröstur.
Blanda er einnig komin á yfirfall þar sem Blöndulón er einnig orðið fullt. Þar vannst þó ákveðinn varnarsigur því að óttast var að Blanda færi á yfirfall um miðjan júlí en raunin varð önnur svo drjúgur hluti sumars bjargaðist. Svartá sem fellur í Blöndu er að gefa mun betri veiði en síðustu þrjú ár og ljóst að hún er að njóta góðs af verndunaraðgerðum í Blöndu, eftir að maðkur var bannaður og sett á sleppiskylda.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |