Laxatorfurnar í Dölunum eru magnaðar

Hvað skyldu þetta vera margir laxar? Torfan er beggja vegna …
Hvað skyldu þetta vera margir laxar? Torfan er beggja vegna grjótsins sem aðeins stendur upp úr. Áin er svo krystaltær að hvert grjót í botni sést. Þetta er neðri hluti Kristnipolls. Ljósmynd/Jón Þór

Það er mikið af laxi í Laxá í Dölum en hann er ekki mjög tökuglaður í því sumarveðri sem þar hefur verið. Áin er mjög vatnslítil og fiskurinn bunkar sig saman. Það er ljóst að rigningar munu breyta þessu ástandi og einhverjir veiðimenn eiga eftir að lenda þarna í bingói.

Dönustaðagrjót. Hér er mikið af fiski þó svo að erfitt …
Dönustaðagrjót. Hér er mikið af fiski þó svo að erfitt hafi verið að fá hann til að taka í þessari glæru sem verið hefur. Ljósmynd/ Jón Þór

Jón Þór Júlíusson, einn af aðstandendum Hreggnasa ehf sem er með Dalina á leigu tók þessar myndir fyrir skemmstu og sé greinilega hversu þykk og mikil laxatorfan er neðarlega í Kristnipolli. Þetta er einn af lykilstöðum árinnar og geymir hann ávallt mikið magn af fiski. Þetta er þó bara neðri hlutinn og oft er enn meira af fiski ofar í veiðistaðnum.

Kristnipollur í aðeins meiri hæð. Efst á myndinni má greina …
Kristnipollur í aðeins meiri hæð. Efst á myndinni má greina huta af laxatorfunni sem er ofar í hylnum. Ljósmynd/Jón Þór

Hinn veiðistaðurinn er Dönustaðagrjót þar sem einnig er mikið af fiski og þessar ljósmyndir Jóns sýna svo ekki verður um villst að það er nóg af honum. Það er hins vegar nauðsynlegt að fá meira vatn og þá gerast ævintýri eins og svo oft í Dölunum síðsumars.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert