Störukeppni og stórfiskar

Engu líkara en að urriðinn sé að öskra á hundinn. …
Engu líkara en að urriðinn sé að öskra á hundinn. Þetta var smá störukeppni milli þeirra en allt fór vel. Ljósmynd/Elfar Aðalsteinsson

Nú fer hver að verða síðastur að skila inn mynd í veiðimyndasamkeppni mbl.is, Veiðihornsins og Sporðakasta. Frestur til að skila inn myndum er til 1. október og eftir það mun dómnefnd skipuð valinkunnum veiðimönnum og ljósmyndurum skoða framlög sem hafa borist.

Hér eru nokkrar myndir sem sendar hafa verið til okkar. Netfangið er eggertskula@mbl.is

Fyrsta myndin er skemmtileg störukeppni hunds og ísaldarurriða. Það er Nils Folmer Jörgensen sem heldur á urriðanum sem virðist annað hvort hneykslaður eða blátt áfram argur. Hundurinn starir bara á móti og Nils fullvissaði Sporðaköst að þetta hefði allt farið vel. Urriðinn fór út í aftur og hundurinn á þurrt til eiganda síns. Þessa mynd tók Elfar Aðalsteinsson.

Skemmtilegt augnablik sem fangar stórlaxinn sem slapp.
Skemmtilegt augnablik sem fangar stórlaxinn sem slapp. Ljósmynd/Kristmann Kristmannsson

Næsta mynd er úr Miðfirði. Hér er Jón Ásgeir Einarsson búinn að setja í svakalegan fisk í Sandgilshyl í Vesturá í Miðfirði. Myndasmiður er Kristmann Kristmannsson. Eins og Jón Ásgeir sagði í samtali við Sporðköst. „Þessi göltur sleit eftir tæplega tuttugu mínútna slagsmál. Sennilega í kringum 100 sentímetrana,“ sagði Jón Ásgeir í samtali við Sporðaköst.

Brosandi Butler með einn af stærstu fiskum Hofsár í sumar.
Brosandi Butler með einn af stærstu fiskum Hofsár í sumar. Ljósmynd/Pétur Pétursson

Hver kannast svo ekki við hamingjusama matreiðslumanninn, Jóhann Gunnar Arnarsson eða Butlerinn eins og hann er alltaf kallaður. Pétur Pétursson leiðsögumaður frá Húsavík tók þessa mynd og hér hampar Butlerinn 97 sentímetra fiski úr Klapparhyl í Hofsá. Hann landaði líka stærsta laxi til þessa úr Selá, 101 sentímetri.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert