Sjóbirtingsslóðir að þiðna á ný

Jóhann Davíð Snorrason með birting úr Hólsá. Eftir frostakaflann er …
Jóhann Davíð Snorrason með birting úr Hólsá. Eftir frostakaflann er birtingurinn farinn að gefa sig þótt tökur séu oft grannar. Ljósmynd/Aðsend

Síðustu dagar hafa verið býsna vorlegir og töluvert hefur hlýnað eftir hörkufrostkafla. Vorveiðin fraus að sama skapi og það var erfitt að fá birtinginn til að taka. En nú er þetta allt að komast í eðlilegt horf. 

Holl sem var að ljúka veiðum á Austurbakka Hólsár fékk þannig hlýnun yfir nótt að síðasta vaktin gaf sex fiska, en fram að því var hópurinn fisklaus. Í gær var kropp á Austurbakkanum og tökur frekar grannar. Nokkrum fiskum var þó landað.

Austurbakki Hólsár er mjög víðfeðmt svæði og nær frá Ármótum Þverár og alveg niður í sjó. Kolskeggur ehf. sem annast sölu veiðileyfa í Eystri-Rangá, Þverá og Affallið tók svæðið á leigu í fyrra og hefur endurnýjað innbú í veiðihúsi. Að sögn Jóhanns Davíðs Snorrasonar framkvæmdastjóra Kolskeggs eru bara seldar sex stangir í vorveiðinni þó að heimillt sé að selja tíu. „Það vantar ekki að það er rúmt um menn á þessu mikla vatnasvæði,“ sagði Jóhann Davíð í samtali við Sporðaköst.

Þá var ágæt veiði í Ytri-Rangá í gær og var sex birtingum landað á fjórar stangir.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert