Sum fá neistann en í öðrum brennur bál

Bæði strákar og stelpur hafa valið áfangann Fluguhnýtingar og stangveiði …
Bæði strákar og stelpur hafa valið áfangann Fluguhnýtingar og stangveiði í Brekkuskóla. Hátt í tvö hundruð ungmenni hafa lokið þessu námi á síðustu árum. Ljósmynd/SM

Hátt í tvö hundruð ungmenni á Akureyri hafa á undanförnum árum útskrifast úr valáfanganum Fluguhnýtingar og stangveiði. Kennslan fer fram í Brekkuskóla, það er að segja bóklegi hlutinn og fluguhnýtingakennslan. Stór hluti námsins er hins vegar utan dyra og meðal annars er farið í tvær veiðiferðir.

Kennarar eru þeir Sigurjón Magnússon og Kári Ellertsson, báðir forfallnir veiðiáhugamenn. Áfanginn hefur verið í boði frá 2013 en hugmyndina fengu þeir eftir að hafa heyrt af sambærilegu námi sem var í boði á Siglufirði.  „Það er virkilega gaman að kenna þennan áfanga, sem er valáfangi fyrir alla grunnskóla á Akureyri. Ég veit að hjá mörgum nemendum kviknaði neisti sem varir enn. Sum koma með bál í sér sem er löngu áður kviknað en fá þá að taka valgrein sem þau hafa áhuga á rétt eins og íþróttakrakkarnir eða aðrir,“ sagði Sigurjón í samtali við Sporðaköst.

Sigurjón kennari aðstoðar nemanda í dorgveiði. Þær gerast ekki betri …
Sigurjón kennari aðstoðar nemanda í dorgveiði. Þær gerast ekki betri kennslustofunar. Ljósmynd/SM

Nokkrir af þeim ungu veiðimönnum sem völdu þennan áfanga hafa heldur betur látið að sér kveða. Lesendur Sporðakasta kannast án efa við þá Gylfa Kristjánsson og Benjamín Þorra Bergsson sem oft hafa verið til umfjöllunar fyrir magnaða veiði í Eyjafjarðará og víðar. Þeir frændur eru barnabörn fluguhnýtarans Gylfa Kristjánssonar sem meðal annars hannaði og hnýtti silungafluguna Krókinn. Gylfi og hans verk eru í miklum metum í áfanganum og fyrsta alvöru flugan sem krakkarnir reyna sig við er einmitt Krókurinn.

Hjá sumum kviknar neistinn en önnur mæta mæta upp full …
Hjá sumum kviknar neistinn en önnur mæta mæta upp full af áhuga og í þeim brennur bál segir Sigurjón. Ljósmynd/SM

Fluguhnýtingaþáttur námsins miðar að því að kenna krökkunum undirstöðuatriðin í hnýtingum og þau fá leiðsögn við að hnýta nokkrar vinsælar silunga- og laxaflugur. Lokaverkefni þessa hluta áfangans er svo að hanna og hnýta eigin flugu.

Hápunktur námsins eru veiðiferðirnar hvort sem er í dorgveiði eða …
Hápunktur námsins eru veiðiferðirnar hvort sem er í dorgveiði eða fluguveiði að hausti eða vori. Ljósmynd/SM

Nemendur hafa notið þess að fara í Eyjafjarðará, Reykjadalsá og í dorgveiði í Langavatni, svo eitthvað sé nefnt. Þá hefur Lónið í Glerá á Akureyri oft verið vettvangur flugukastkennslu. „Við höfum notið mikils velvilja hjá veiðiréttarhöfum. Þannig hefur Matthías Hákonarson, sem er með Fluguveiði.is leyft okkur að fara með nemendur í Vestmannsvatn og Reykjadalsá og við höfum fengið að fara frítt með nemendur í Eyjafjarðará í boði veiðifélagsins. Þetta er ómetanlegt fyrir okkur og krakkana.“

Lokaverkefnið er að hanna og hnýta sína eigin flugu. Leigutakar …
Lokaverkefnið er að hanna og hnýta sína eigin flugu. Leigutakar hafa verið afar samvinnufúsir og hér má sjá tvo nemendur með urriða úr Reykjadalsá. Ljósmynd/SM

Það er óhætt að segja að þeir Sigurjón og Kári taka þetta alla leið. Hér er dæmi.

„Ég fæ hvítmaðk frá Atla bónda á Ingjaldsstöðum í Bárðardal en hann hendir hræi út á haustin uppá gamla mátann og lætur maðka. Hann er einn af fáum sem er með svona gamaldags maðkaveitu. Ég fæ svo hnausa til að tína úr maðk og svo er fyrirlestur fyrir krakkana hvernig þetta allt er gert og sýnikennsla þar sem maðkurinn er settur upp í sig og undir tunguna til að fá líf í hann áður en honum er beitt,“ hér brosir Sigurjón.

Það er mikilvægt að ungir veiðimenn fái tækifæri til að fræðast um sportið en flest allir sem tengjast veiðinni á einhvern hátt eru sammála um að einna mikilvægast sé að fjölga ungum veiðimönnum og þar með tryggja að sportið lifi góðu lífi. Við höfum áður sagt frá sambærilegum áfanga í Rimaskóla í Grafarvogi og einnig hefur Smáraskóli í Kópavogi boðið nemendum sínum upp á sambærilegan valáfanga og sjálfsagt fleiri skólar.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert