Nýr leigusamningur um Hofsá til 10 ára

Undirritun samningsins á laugardag í Veiðihúsinu við Hofsá. Frá vinstri …
Undirritun samningsins á laugardag í Veiðihúsinu við Hofsá. Frá vinstri standandi: Eyþór Bragason, Þuríður Björg Wiium, Pétur V. Jónsson, Skúli Þórðarson. Sitjandi: Jón Magnús Sigurðarson formaður til vinstri og Gisli Asgeirsson frá Six Rivers Project. Ljósmynd/SRP

Aðalfundur Veiðifélags Hofsár og Sunnudalsár samþykkti og undirritaði nýjan langtíma leigusamning við núverandi leigutaka, félagið Six Rivers Project. Samningurinn er til tíu ára með mögulegri framlengingu til fimm ára í viðbót. Fundurinn var haldinn í veiðihúsinu við Hofsá á laugardag.

Núgildandi samningur um leigu á Hofsá og Sunnudalsá var til ársins 2023. Í nýja samningnum er gert ráð fyrir verulegri samvinnu og samstarfi milli aðila og er þar kveðið á um uppbygginu á nýju veiðihúsi við Hofsá.

Félagið Six Rivers Project er félag breska auðjöfursins, James Ratcliffe og heldur það utan um þau ársvæði sem félagið ýmist á eða er með á leigu á Norðausturlandi.

Í kynningu á SRP segir að félagið sé ekki hagnaðardrifið heldur sé markmiðið að stuðla að verndun laxastofna á svæðinu og tryggja framgang laxins. Bent er á á heimasíðu félagsins að Atlantshafslaxinn eigi mjög undir högg að sækja og sé hreinlega útdauður í mörgum löndum þar sem áður voru heimkynni hans.

Veiðimaður slæst við stórlax í Neðri fossi í Hofsá. Þetta …
Veiðimaður slæst við stórlax í Neðri fossi í Hofsá. Þetta er einn af fallegustu veiðistöðum Hofsár. Ljósmynd/Einar Falur

SRP hafði þegar upplýst um áætlanir sínar hvað varðar veiðihúsabyggingar og er þessi nýi samningur liður í þeim áformum, upplýsti Gísli Ásgeirsson framkvæmdastjóri félagsins í samtali við Sporðaköst. Undirbúningur og hönnun á nýju veiðihúsi við Hofsá er þegar hafinn. Ekki liggur fyrir hvar nýja húsið mun rísa.

„Ég vil nota tækifærið og fyrir hönd Six Rivers Project þakka landeigendum við Hofsá og Sunnudalsá fyrir traustið sem þeir sýna okkur með því að samþykkja þennan samning um umsjón með þessari náttúruperlu,“ sagði Gísli.

Veiðin í Hofsá hefur sveiflast mikið síðustu árin. Síðasta sumar var veiðin 601 lax en árið 2020 var mjög gott í Hofsá og fór hún þá yfir þúsund laxa í fyrsta skipti frá árinu 2013. Lokatalan 2020 var 1.017 laxar.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert