Viltu leigja veiðilón á afrétti?

Séð yfir Langasjó á Skaftártunguafrétti. Eins og myndin ber með …
Séð yfir Langasjó á Skaftártunguafrétti. Eins og myndin ber með sér ber vatnið nafn með réttu. Þarna er mikið af bleikju en hún hefur verið smá. Rax / Ragnar Axelsson

Veiðifélag Skaftártungumanna óskar nú eftir tilboðum í þrjú veiðivötn á afrétti Skaftártungu. Um er að ræða Grænalón, Botnlangalón og Langasjó. Vötnin og vatnasvið þeirra leigjast út hvert fyrir sig. 

Í lýsingu á svæðunum segir: Grænalón á Skaftártunguafrétti, útfall lónsins að Dalakvísl og í Dalakvísl að Kirkjufellsósi. Veiðihús stendur við lónið og er miðað við að afnotaréttur af húsinu sé hluti af tilboðinu.

Þá er það Langisjór og útfall úr vatninu. Þar með fylgir veiðiréttur í Fagralóni og öðrum lónum  sem liggja samsíða sunnan við Langasjó. Þar er einnig hús til afnota sem stendur við Langasjó.

Loks er það Botnlangalón og Lónakvísl. Þar stendur einnig hús og þarf að taka tillit til þess í tilboðsgerð.

Í auglýsingu frá veiðifélaginu er miðað við að leigan sé til tveggja ára og gert að skilyrði að leigutaki haldi veiðiskýrslur og skili þeim inn til Fiskistofu við lok veiðitíma.

Fyrst og fremst er bleikja í þessum vötnum og voru mörg þeirra orðin ofsetin og unnið hefur verið að grisjun vatnanna í þeirri viðleitni að fækka bleikjunni og um leið að stefna að því að hún verði stærri. Pétur Sigurðsson bóndi á Búlandi sem sæti á í stjórn veiðifélagsins sagði í samtali við Sporðaköst að engin takmörkun væri á stangafjölda og menn mættu raunar gera það sem hentaði. Netaveiði er heimiluð. Hann staðfesti að fyrst og fremst væri um bleikju að ræða en einhverjar sagnir hefði hann heyrt um urriða í Langasjó en þekkti það þó ekki gjörla.

Slóðar að vötnunum segir Pétur að séu í þokkalegu standi. Vissara er þó að fara ekki einbíla eigi menn erindi að fjallabaki.

Húsin sem standa við þessi vötn eru fín til síns brúks. Ágæt eldunar- og svefnaðstaða.

Tilboðum skal skila fyrir 28. mars og þau ber að senda á netfangið veidifelag.skaft@gmail.com.

Hér er tækifæri til að leigja sitt eigið veiðilón og vera kóngur um stund á einhverju fegursta svæði Íslands.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert