Konfektgerð mæðgnanna

Fallegir fylltir konfektmolar.
Fallegir fylltir konfektmolar. maedgurnar.is

Mæðgurnar Solla á Gló og Hildur gerðu jólakonfektið fyrir skemmstu. Lífrænt og heilnæmt eins og þeim einum er lagið. Svo er allt sem þær gera líka svo fallegt!

„Okkur mæðgum finnst gaman að gefa jólagjafir sem hægt er að borða. Stundum gerum við auka skammt af konfekti til að lauma í nokkra jólapakka. Á hverju ári pössum við að útbúa nóg af uppáhaldskonfektinu okkar, marsípanmolunum góðu, og í ár ætlum við að bæta við hnetusmjörs-karamellumolum til að fá fjölbreytni í konfektkassann.

Hnetusmjörsfyllingin er ofureinföld. Hana má móta í kúlur og hjúpa í súkkulaði á sama hátt og við gerðum við marsípanmolana, en það má líka nota konfektmót og sprauta fyllingunni í. Aðalmunurinn á aðferðunum liggur í útlitinu, en áferðin verður líka aðeins ólík. Til að fá leiðbeiningar fyrir kúlur, skoðið marsípan-bloggið. Hér eru leiðbeiningar fyrir konfektgerð með konfektformum:

Hellið ríflega af bræddu súkkulaði í konfektform, fyllið næstum því,

maedgurnar.is

snúið frekar snöggt við alveg á hvolf og látið súkkulaðið leka úr forminu á bökunarpappír.

maedgurnar.is

Með þessu erum við að hylja formin að innanverðu með þunnu lagi af súkkulaði. Setjið formin með súkkulaðinu í frysti og látið harðna. (Við setjum súkkulaðið sem lak á bökunarpappírinn aftur í skálina með brædda súkkulaðinu til að nota á eftir).

Þegar súkkulaðið er orðið hart, sprautið karamellunni í formin, fyllið ekki alveg því við þurfum að setja súkkulaði til að loka konfektinu. Setjið inn í frysti í 5-10 mín. 

maedgurnar.is

Setjið súkkulaði yfir fyllinguna, skafið með spaða eða öðru áhaldi svo þetta verði jafnt. Látið stífna inni í frysti þar til orðið hart og auðvelt að taka úr forminu.

Fylltir konfektmolar

Súkkulaðið

200 g 71% súkkulaði, lífrænt & fairtrade

  1. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði – okkur finnst best að hafa hitann ekki of háan svo súkkulaðið hitni ekki of mikið, heldur bara rétt bráðni, þá fær konfektið fallegan gljáa.

Karamellufylling

100 g döðlur
1 dl hreint hnetusmjör, fínt
2 msk. kókosolía (fljótandi)
hýðið af 1 lífrænni appelsínu

  1. Saxið döðlurnar smátt og setjið í matvinnsluvél með hnetusmjörinu, kókosolíunni og appelsínuhýðinu.

  2. Setjið fyllinguna í sprautupoka. 

Aðferð

  1. Hellið ríflega af bræddu súkkulaði í konfekt form, fyllið næstum því, snúið frekar snöggt við og látið súkkulaðið leka úr forminu á bökunarpappír. Með þessu erum við að gera þunnt lag af súkkulaði í formin. Setjið formið með súkkulaðinu í frysti og látið harðna.

  2. Þegar súkkulaðið er orðið hart, sprautið karamellunni í formin, fyllið ekki alveg því við þurfum að setja súkkulaði til að loka konfektinu. Setjið inn í frysti í 5-10 mín.

  3. Setjið súkkulaði yfir karamelluna, skafið með spaða eða öðru áhaldi svo þetta verði jafnt. Látið stífna inn í frysti þar til orðið hart og auðvelt að taka úr forminu.

  4. Geymist best í kæli/frysti.

Mæðgurnar Solla Eiríks og Hildur Ársælsdóttir eru meistarar í eldhúsinu.
Mæðgurnar Solla Eiríks og Hildur Ársælsdóttir eru meistarar í eldhúsinu. Styrmir Kári
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka