Ómótstæðilegur brauðréttur með osti og parmaskinku

mbl.is/Hjördís Dögg Grímarsdóttir

Brauðréttir njóta mikilla vinsælda enda burðarvirkið í góðri veislu að margra mati. Þessi brauðréttur er í senn einfaldur og fáránlega gómsætur. Hver elskar ekki brauðrétt sem er löðrandi í osti og skreyttur með parmaskinku?

Það er Hjördís Dögg Grímarsdóttir á mömmur.is sem á heiðurinn að þessari snilld en hægt er að nálgast matarbloggið hennar HÉR.

Ómótstæðilegur brauðréttur með osti og parmaskinku

Uppskrift:

  • Baguette-brauð eða annað sambærilegt brauð

Fylling:

  • Smurostur með beikoni frá MS
  • Rautt pestó
  • Óðals-Maribo í sneiðum
  • Dala-hringur
  • Parmaskinka
  • Rifinn Mozzarella ostur frá Gott í matinn
  • Hvítlaukskryddblanda

Aðferð:

  1. Skerið litlar rifur í baguette-brauðið og gætið þess að skera ekki alveg í gegnum það.
  2. Hver brauðrifa er smurð með beikonsmurorsti og pestó.
  3. Maribo-osturinn er skorinn í tvennt, osturinn settur ofan á parmaskinkuna ásamt lítilli sneið af Dala-hring. Skinkan er svo brotin saman og sett í hverja brauðrifu.
  4. Dreifið rifnum mozzarella osti er yfir brauðið ásamt hvítlaukskryddblöndu.
  5. Hitið brauðið við 175°C gráður í um 10 mínútur.
  6. Dásamlega gott með rifsberjasultu og vínberjum.
mbl.is/Hjördís Dögg Grímarsdóttir
mbl.is/Hjördís Dögg Grímarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert