Gömlu Rice crispies-kökurnar teknar á næsta stig

mbl.is/María Gomez

„Hér er komin ný uppskrift að Rice crispies-kökunum góðu sem nánast allir landsmenn þekkja. Ég hef mjög oft Rice crispies-kökur í afmæli barnanna minna og hef ég notað uppskrift sem er búin að fylgja mér frá því ég var barn.“

„Hér hins vegar ákvað ég að gjörbylta uppskriftinni og notast við bingókúlur og Coco pops í staðinn fyrir annað hráefni.“

María Gomez - Paz.is

mbl.is/María Gomez

Bingópops

  • 300 gr. bingókúlur (2 pokar)
  • 200 gr. smjör eða Ljóma
  • 6 msk. bökunarsíróp
  • 200-250 gr. Coco pops

Aðferð:

  1. Setjið smjör og bingókúlur í pott og bræðið saman yfir miðlungshita
  2. Bætið sírópinu út í og hrærið vel saman þar til allt er brætt og silkilmjúkt
  3. Takið af hellunni og bætið út í Coco pops og hrærið varlega saman
  4. Setjið svo í falleg muffinsform og setjið í frysti
  5. Gott að taka úr frysti 15 mínútum áður en á að bera fram
mbl.is/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert