Hvað er betra á aðventunni en að fá sér heitan og ljúfan kokteil eftir góða og nærandi útiveru? Það er engin önnur en Linda Ben sem á heiðurinn að þessum drykk sem ætti að ylja einhverjum um hjartaræturnar.
Heimasíðu Lindu Ben er hægt að nálgast HÉR.
Swiss Mocha-kokteill
Hráefni fyrir tvö glös:
- 100 ml þeyttur rjómi
- 3 matskeiðar sykur
- 3 tsk. vanillusykur
- 1 tsk. Stroh 60 romm
- 4 matskeiðar kakó
- 400 ml af mjólk
- 40 g af súkkulaði (dökkt)
- Sterkt espresso skot
- 2 til 4 cl Stroh 60 romm
Aðferð:
Rjómablandan:
- Þeytið rjóma með 1 msk. sykri og 1 tsk. vanillusykri.
- Rétt áður en rjóminn er orðinn stífþeyttur, bætið við 1 tsk. af Stroh-rommi út í.
Stroh-kakó:
- Blandið kakódufti, dökku súkkulaði, mjólk og 2 msk. af sykri og 2 tsk. af vanillusykri í pott og hrærið saman við vægan hita.
- Takið pottinn af hitanum og bætið 2-4 cl af Stroh-rommi út í pottinn og hrærið.
- Setjið sitt espresso-skotið í hvorn bollan. Hellið kakóblöndunni í bolla eða glas og bætið svo rjómanum ofan á. Fallegt að skreyta með smá saltri karamellu en því má sleppa.