Kjúklingaréttur með einungis fjórum hráefnum

EInfaldur og góður kjúklingaréttur sem engan svíkur.
EInfaldur og góður kjúklingaréttur sem engan svíkur. mbl.is/Thecookierookie.com

Við elskum rétti sem þennan sem inniheldur einungis 4 hráefni og tekur enga stund í framreiðslu – og það besta er að hann er vinsæll hjá öllum í fjölskyldunni. Þessi bráðnar hreinlega í munni og mun engan svíkja.

Kjúklingaréttur með einungis fjórum hráefnum

  • 4 kjúklingabringur frá Ali
  • 1 bolli sesar salat dressing
  • ½ bolli sýrður rjómi
  • 1- 1½ bolli parmesan ostur

Aðferð:

  1. Hitið ofninn á 190°C og spreyið eldfast mót að innan með bökunarspreyi. 
  2. Ef að bringurnar eru misstórar má „berja þær flatar“ til að jafna út. Stráið parmesan osti og pipar á báðar hliðar og leggið í eldfast mót.
  3. Þeytið saman sesar salat dressingu og sýrðan rjóma, og hellið yfir bringurnar.
  4. Dreyfið parmesan osti yfir og bakið í ofni í 30 mínútur eða þar til bringurnar eru eldaðar í gegn.
  5. Stillið þá á grill og grillið bringurnar í 2-4 mínútur til viðbótar.
  6. Takið úr ofninum og látið álpappír yfir eldfasta mótið. Látið standa í 5-10 mínútur áður en borið er fram.
  7. Hér má gjarnan strá saxaðri steinselju yfir ef vill og það meðlæti með sem óskað er.
mbl.is/Thecookierookie.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert