Þessi útgáfa er hrikalega spennandi en hér er kaffiskyri blandað saman við rjóma og það er geggjað. Það er Thelma Þorbergs sem á heiðurinn að þessari uppskrift.
Bollur með kaffirjóma og súkkulaðiglassúr
20 bollur
Vatnsdeigsbollur:
- 240 ml vatn
- 115 g smjör
- 1 msk. sykur
- 1⁄2 tsk. salt
- 120 g hveiti
- 4 stk. egg
Rjómafylling:
- 500 ml rjómi frá Gott í matinn
- 350 g KEA skyr kaffi og vanillu
- 2 msk. flórsykur
- 1 msk. skyndikaffi, malað
Súkkulaðiglassúr:
- 500 g flórsykur
- 3 msk. dökkt kakó
- 3 tsk. sterkt kaffi
- 50 g smjör, brætt
- heitt vatn
Vatnsdeigsbollur
- Setjið vatn í pott yfir meðal háum hita og látið suðu koma upp.
- Setjið smjör, sykur og salt saman við og hrærið þar til smjörið hefur náð að bráðna saman við vatnið.
- Setjið hveitið saman við og hrærið stanslaust þar til deigið er orðið þykkt og sleppir hliðum pottsins.
- Slökkvið undir pottinum, bætið einu eggi saman við í einu og hrærið vel á milli.
- Setjið deigið í sprautupoka með þeim stút sem þið viljið. T.d. 1M, rósastút eða klippið 1 cm gat fremst á sprautupoka.
- Setjið smjörpappír á bökunarplötu og sprautið deiginu jafnt á plötuna. Hver bolla þarf ekki mikið deig þar sem þær lyfta sér vel í ofninum. Ýtið lauslega með með skeið ofan á hverja bollu fyrir sig svo það sé ekki toppur af deigi sem standi upp, þannig verða bollurnar fallegri í laginu.
- Bakið bollurnar við 200 gráðu hita í 10 mínútur, lækkið þá ofninn niður í 170 gráður og bakið í 15 mínútur.
- Látið bollurnar kólna áður en þið skerið þær í sundur og setjið á þær.
Rjómafylling
- Þeytið rjómann þar til hann stendur, passið ykkur þó að þeyta hann ekki of mikið.
- Blandið skyrinu saman við ásamt kaffi og flórsykri og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Setjið rjómablönduna í sprautupoka og sprautið fallega á hverja bollu fyrir sig, eða setjið 2 msk. á hverja bollu.
- Súkkulaðiglassúr
- Setjið flórsykur í skál ásamt kakói og hrærið vel saman.
- Bræðið smjör og hellið saman við ásamt kaffi og hrærið vel saman.
- Bætið heitu vatni saman við þar til þið hafið náð þeirri þykkt á glassúrnum sem við viljið, því meira vatn sem þið setjið því þynnra verður glassúrinn.
- Geymið bollurnar í kæli þar til þær eru bornar fram.