Þegar þú vilt að matreiðslan heppnist upp á tíu – þá þarf uppskriftin að vera auðveld og góð. Og þessi pastaréttur er einmitt þannig - hann tikkar í öll box.
Það er Hildur Rut sem býður okkur upp á þetta kjúklingapasta með pestórjómasósu og ristuðum furuhnetum.
Tagliatelline með kjúklingi og rjómapestósósu (fyrir tvo)
- 2 kjúklingabringur
- Ólífuolía
- Salt og pipar
- 1 krukka grænt pestó frá Filippo Berio
- 1 ½ dl rjómi
- 1/2 dl rifinn parmesan ostur
- 8-10 kokteiltómatar
- 1/2 dl ristaðar furuhnetur
- Fersk steinselja eða basilika
- Tagliatelline frá De Cecco
Aðferð:
- Skerið kjúklingabringurnar í tvennt langsum þannig að úr verða tvær þunnar sneiðar.
- Steikið þær á pönnu upp úr olíu og saltið og piprið.
- Bætið pestóinu saman við. Ég læt alltaf 2-3 msk af vatni í krukkuna þegar hún er orðin tóm (það er alltaf slatti af pestói sem verður eftir í krukkunni). Set lokið á og hristi saman. Helli svo restinni út í.
- Hellið rjómanum saman við og dreifið parmesan ostinum yfir. Blandið öllu saman. Bætið vatni eða rjóma saman við ef þið viljið hafa sósuna þynnri.
- Sjóðið tagliatelline eftir leiðbeiningum. Það tekur 5 mínútur að sjóða það.
- Skerið tómatana í sneiðar og dreifið yfir kjúklinginn.
- Dreifið að lokum futuhnetunum, steinselju eða basiliku og parmesan osti yfir allt saman. Berið fram með tagliatelline.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir