Sólveig Andrea hannar gullfalleg eldhús

Þessi fallega innrétting er úr Byko, ásamt tækjum. Borðplatan er …
Þessi fallega innrétting er úr Byko, ásamt tækjum. Borðplatan er frá Shelgason steinsmiðju og kemur vel út á móti viðnum. Mbl.is/Vignir Már

Við tókum púlsinn á innanhússarkitektinum Sólveigu Andreu – sem hefur hannað ófá eldhúsin og hvert öðru fallegra. Og þegar við rekumst á fallega eldhúshönnun fer allt annað á pásu – sérstaklega ef um íslensk eldhús er að ræða.

Sólveig Andrea Jónsdóttir útskrifaðist sem innanhússarkitekt frá Istituto Superiore di Architettura e Design MILANO árið 1988 og hefur starfað sem slíkur síðan. Hún elskar að sýsla í eldhúsinu löngum stundum að elda og undirbúa matarboð fyrir vini og fjölskyldu, en Sólveig á þrjú börn og tvö barnabörn – svo það er í nógu að snúast. Við spurðum Sólveigu nokkurra spurninga um mikilvægasta rými heimilisins – eldhúsið. Og fengum hana til að deila með okkur myndum af nokkrum eldhúsum sem hún hefur svo smekklega hannað.

Hvað eru heitustu eldhústrendin þessi dægrin?

Það er mjög vinsælt að vera með tækjaskáp í eldhúsinu þessa dagana, og það ekki að ástæðulausu.

Að hverju þarf fólk að huga þegar það fer út í eldhúsframkvæmdir?

Best er að leita til fagmanns til að fá sem mest út úr plássinu, því við sjáum oft lausnir sem fólk sér ekki svo glögglega. Eins þarf að skoða vel efnisval, lýsingu og borðplötu – allt þetta skiptir máli í rými sem þessu.

Hvað er það skemmtilegasta við að hanna nýtt eldhús?

Mér finnst eldhúsið alltaf vera „aðalmálið" í húsinu, og því skiptir máli að það sé vel skipulagt og fallegt efnisval, því efnisvalið þarf að vera gegnumgangandi í húsinu. Oftast velur maður efni í eldhús áður en gólfefnið er valið. Og þar sem mér finnst svo skemmtilegt að elda og nota eldhúsið, þá er það með því skemmtilegra sem ég hanna.

Hvað er ómissandi að hafa/eiga í eldhúsinu?

Margir vilja hafa tækjaskáp, og mér finnst hann vera ómissandi ef hann kemst fyrir. Einnig er mjög vinsælt að hafa tvo ofna, þá einn venjulegan og annan minni  en það flokkast kannski ekki undir að vera ómissandi.

Hægt er að skoða fleiri verk og setja sig í samband við Sólveigu á Facebook eða á Instagram

Mbl.is/Vignir Már
Fallegt útsýni úr eldhúsrýminu. Borðstofuljósið er frá Magnolia og borð …
Fallegt útsýni úr eldhúsrýminu. Borðstofuljósið er frá Magnolia og borð og stólar frá Epal. Mbl.is/Vignir Már
Þessi glæsilega innrétting er frá HTH og steinninn kemur frá …
Þessi glæsilega innrétting er frá HTH og steinninn kemur frá Granítsmiðjunni. mbl.is/Guðfinna Magnúsdóttir
Hér var steinninn í eldhúsinu valinn með flísarnar á baðherberginu …
Hér var steinninn í eldhúsinu valinn með flísarnar á baðherberginu í huga – látlaus en tímalaus. Hér má auðveldlega breyta skápnum í bar þegar blása á til veislu. mbl.is/Guðfinna Magnúsdóttir
mbl.is/Guðfinna Magnúsdóttir
Öðruvísi og skemmtilegt eldhús í loftíbúð í 101 Reykjavík.
Öðruvísi og skemmtilegt eldhús í loftíbúð í 101 Reykjavík. mbl.is/Mynd aðsend
mbl.is/Mynd aðsend
Sólveig Andrea er innanhússarkitekt að mennt og hefur hannað ófá …
Sólveig Andrea er innanhússarkitekt að mennt og hefur hannað ófá eldhúsin hér á landi. mbl.is/Mynd aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert