Orkuríkur kaffiboozt er allt sem við þurfum á morgnanna og Hildur Rut færir okkur þennan ljúffenga og orkuríka drykk hér. Espresso-skot, banani, döðlur, hnetusmjör, haframjöl, hampfræ, kakó og möndlumjólk – skotheld blanda.
Kaffiboozt sem keyrir þig í gang (fyrir 1)
- 1-2 espresso-skot Sjöstrand nr. 1
- 2 dl möndlumjólk
- 1 frosinn banani
- 3 döðlur
- 1 msk. hnetusmjör
- 1 msk. haframjöl
- 1 tsk. hampfræ
- 1 tsk. kakóduft
- 4-6 klakar
Aðferð:
- Útbúið 1-2 kaffiskot í glas. Bætið 1-2 klökum saman við kaffið og kælið.
- Setjið öll hráefnin saman í blandara og hrærið vel saman.
- Hellið í glas og njótið.