Ný nálgun á mat hjá Hnoss er að slá í gegn

Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir Kristinn Magnússon

Yfirmateiðslumeistari Hnoss er Fanney Dóra Sigurjónsdóttir sem er einn af reyndari matreiðslumönnum landsins en hún segir markmiðið hafa verið að opna stað með þægilegu andrúmslofti, þar sem hægt væri að koma í mat eða kíkja bara í drykk, halda vinnufundi í hádeginu eða koma með fjölskylduna í bröns um helgar.

„Við viljum framreiða alvörumat á fumlausan og faglegan máta, með bros á vor og vinalegu viðmóti. Markmið okkar er að bjóða upp á eitthvað fyrir alla! Mataráhugafólk fær áhugaverða rétti og þeir sem hugsa um heilsuna geta valið heilsusamlegan mat,“ segir Fanney Dóra. Staðurinn hefur vakið eftirtekt fyrir skemmtilega grænmetisrétti og er Fanney að vonum ánægð með það.

„Lúðu-ceviche-ið er einn af mínum uppáhalds, enda byggður á uppáhalds …
„Lúðu-ceviche-ið er einn af mínum uppáhalds, enda byggður á uppáhalds súpunni minn; Tom Kha,” segir Fanney Dóra. Í þessum rétti notum við límónulauf, sítrónugras og engifer í marineringuna á lúðunni sjálfri, en svo tökum við kókos-hlutann með því að rista kókosflögur og gera kókoskrem sem er ansi umdeilt hvort eigi og megi bera fram með ceviche. En við elskum þetta svo þannig er það! Kristinn Magnússon

„Sjálfri þykir mér mjög skemmtilegt að nota grænmeti í rétti sem allir geta og vilja borða. Ég held að ef við tökum öll lítil græn skref þá hjálpi það mikið. Okkur Stefáni og Þórunni, meðeigendum mínum, finnst líka svona matur skemmtilegur, hressandi og passa vel inn í þetta fallega hús sem Harpa er. Margir af gestum okkar eru á leið á viðburði í húsinu og kannski ekki alveg í stuði fyrir þungan mat. Svo er bara svo gaman að koma kjötelskandi fólki á óvart með ótrúlegustu grænmetisréttum!“

Fanney segir viðtökurnar hafa verið framar björtustu vonum og hún sé afar þakklát fyrir það. „Bæði hafa aðrir íbúar hússins verið duglegir að koma í mat eða nýta staðinn til funda eða skemmtunar, en einnig hafa gestir Hörpu verið fljótir að kveikja á perunni. Hjá okkur er nánast fullt allar helgar, hádegin eru frábær og alltaf meira og meira að gera í brönsinum okkar um helgar. Við erum því mjög glöð með viðtökurnar,“ segir Fanney.

„Það er náttúrlega ótrúleg upplifun að verja meginþorra dagsins í þessari fallegu byggingu sem Harpa er! Það er eiginlega sama hvernig veðrið er, húsið breytist með veðrinu; skuggasýningar í sólinni eða sjónsteypan verður allt í einu hlýleg þegar það snjóar úti. Svo erum við núna á þessum rúmu tveimur mánuðum búin að kynnast mörgum af íbúum hússins, s.s. Sinfóníuhljómsveitinni, Íslensku Óperunni og starfsfólki Hörpu, sem er afskaplega ánægjulegt. Smávegis svona Staupasteins-stemning og vinalegt spjall inn á milli er algjörlega frábært!“

Fiskur er mikið uppáhaldshráefni hjá Fanneyju og svo auðvitað grænmeti. „Grænmetið getur verið svo frábærlega fjölbreytt en oftar en ekki þarf ansi lítið til að gott grænmeti bragðist eins og sælgæti. Ég hætti að borða fisk á sínum tíma sem unglingur en hef tekið út minn fiskiskammt margfalt síðustu árin. Við eigum svo æðislegan fisk hérna á Íslandi, ótrúlega auðlind sem gaman er að framreiða á fjölbreyttan máta. Svo ELSKA ég að gera brauðtertur! Er einmitt með mína uppáhaldsbrauðtertu í brönsinum okkar um helgar – „spicy“ túnfisk með jalapeno, súrum gúrkum og BBQ-sósu!“

Rófan hefur heldur betur slegið í gegn.
Rófan hefur heldur betur slegið í gegn. Kristinn Magnússon

Ertu byrjuð að undirbúa jólin? „Ekki ég persónulega, en á Hnossi erum við svo sannarlega byrjuð að undirbúa jólin. Megija, desertmeistarinn okkar, er byrjuð að baka sörur í frystinn og fleira góðgæti. Við erum einnig tilbúin með spennandi fjögurra rétta hátíðarseðil sem við ætlum að bjóða upp á hjá okkur á kvöldin. Núna 20. nóvember hefjast jólin hjá okkur, þegar við breytum brönshlaðborðinu okkar í „julefrokost-brönsborð“ og hristum kanilinn yfir mann og annan.“

Aðspurð hver sé hennar uppáhaldsveitingastaður segir Fanney að hægt sé að svara þeirri spurningu á nokkra vegu. „Ef ég tek inn í dæmið hvar ég ver mestum tíma, þá er það klárlega Hnoss! Bestu staðir sem ég hef borðað á eru Frantzén í Stokkhólmi og Koks í Færeyjum, en ég er nú ekki að hanga þar svona dagsdaglega. Á sumrin er algjört möst að fara á Viðvík á Hellissandi og á pallinn til mömmu og pabba í grill. En ef ég hugsa um hvað ég borða þegar ég er ekki að vinna og nenni ekki að elda, þá elska ég nautatartarinn á Báli, tom kha-súpuna á Mai Thai og kálfinn á Eiriksson. Þetta er mjög erfið spurning!“

Við hverju má fólk búast þegar það kemur til þín? „Það má búast við því að láta koma sér á óvart með ferskum og góðum mat. Margir réttanna hjá okkur vekja spurningar og kátínu meðal gesta, eins og t.d. rækjukokteillinn okkar sem er með Hnoss-kimchi-dressingu í stað þessarar gömlu góðu Mary Rose-sósu – eða kokteilsósu. Svo hefur rófan okkar verið mjög vinsæl, en flestir þekkja rófu mauksoðna í stöppu eða í kjötsúpu. Við förum aðeins aðra leið, hægeldum hana og grillum svo þannig að enn sé bit í henni og berum fram með sesam-hnetusósu. Skemmtileg nálgun finnst mér á vanmetnasta hráefni okkar Íslendinga!“

„Svo er það vegan aðalrétturinn okkar, sem hefur komið mörgum …
„Svo er það vegan aðalrétturinn okkar, sem hefur komið mörgum kjötætum á óvart. Við erum með miso-ristaða sellerírót sem við svo grillum og berum fram með linsubaunapottrétt með hlýjum kryddum sem minna á Indland. Með réttinum eru svo reyktar gulrætur og sýrður rauðlaukur, sem skapar að okkar mati frábært jafnvægi við pottréttinn og sellerírótina." Kristinn Magnússon
„Svo má ekki gleyma súkkulaðinu! Ég er svona 40% súkkulaði, …
„Svo má ekki gleyma súkkulaðinu! Ég er svona 40% súkkulaði, 40% kampavín og 20% kaffi. Súkkulaðidesertinn okkar er gerður úr uppáhalds súkkulaðinu mínu frá Omnom, kaffisúkkulaði. Við erum með heslihnetuköku með brúnuðu smjöri og möluðum heslihnetum, Omnom kaffisúkkulaðimús og kaffiperlur, ristaðar heslihnetur og fersk hindber. Algjör sælgæti og alls ekki of sætur eða þungur réttur, eins og sumir súkkulaðiréttir verða oft." Kristinn Magnússon
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert