Túrmerik er allra meina bót! Það er bólgueyðandi, gott fyrir húðina og ónæmiskerfið eða það allra besta sem þú setur út í boostinn þinn að sögn Helgu Möggu sem á heiðurinn að þessari uppskrift.
Leynitrixið í góðan boost
- Klakar 6-8stk
- 120 g ananas
- 100 g epli
- 150 ml möndlumjólk
- 5 g ferkst túrmerik
- 30 g próteinduft með vanillubragði (eða öðru mildu bragði)
Aðferð:
- Blandaðu öllu saman í blandara með klökum. Það er ekkert verra að nota frosinn ananas.
- Það er óþarfi að taka hýðið af turmerikinu því rótin litar mikið út frá sér. Guli liturinn úr túrmerikinu er einmitt guli liturinn í karrý kryddum.
- Ég skola rótina áður en ég nota hana í köldu vatni.
- Þegar ég kaupi ferskt turmerik í búðinni þá næ ég yfirleitt ekki að klára pakkann áður en hann skemmist, það er því gott ráð að skera turmerikrótina niður í um 5 g bita og frysta. Það er gott að hafa í huga að allt er gott í hófi þegar ferskt túrmerik er annars vegar, túrmerik er sterkt efni og þú getur fengið í magann af því að borða of mikið af því. 5 g í boost er hæfilegt magn í boost að mínu mati til að byrja með.