Honey Badger verður á Næs

Fjölla og Junayd reka veitingastaðinn Honey Badger sem þykir algjörlega …
Fjölla og Junayd reka veitingastaðinn Honey Badger sem þykir algjörlega frábær.

Það er skemmtilegt úrval gestakokka sem mæta á matarhátíðina Matey í Vestmannaeyjum 8.-10. september næstkomandi. Frá veitingastaðnum Honey Badger í New York koma hjónin Fjölla og Junayd en staðurinn hefur vakið mikla athygli og náð að skapa sér sérstöðu fyrir margar sakir.

Hjónin Junayd og Fjölla hafa ólíka bakgrunna en hann er frá Trinidad og Bandaríkjunum á meðan Fjölla kemur frá Albaníu. Þau opnuðu veitingastaðinn Honey Badger í New York árið 2016 og sköpuðu þannig nýja villt-til-borðs (wild-to-table) matreiðsluupplifun sem þau töldu vanta á svæðið.

Síðan þá hefur Honey Badger haldið áfram að veita New York-búum og gestum víðsvegar að úr heiminum einstakt, „fine-dining“ veitingahús, sem leiðir mat og náttúru saman í sátt. 

Junayd og Fjölla eru stolt af nánum tengslum sínum við bændur í nærumhverfi þeirra; allt frá Pennsylvaníu til Labrador, sem útvega Honey Badger ferskt og framandi hráefni. Hver réttur er vandlega útbúinn, undirbúinn og færður úr eldhúsinu til viðskiptavinarins af hjónunum sjálfum; slík er natnin. 

Þessir skapandi kokkar bjóða upp á matseðil í Omakase-stíl og leggja áherslu á árstíðubundin hráefni. Þau leggja áherslu á hráefni í sinni minnst unnu mynd og með þeim hætti brýtur Honey Badger keðjuna með því að afbyggja rétti á hátt sem margir veitingastaðir hafa ekki reynt að gera. 

Glæsilegt rými veitingastaðarins var byggt frá grunni og hannað með hjálp frá dóttur þeirra, Ninu, sem hafði hönd í bagga með mörgum þáttum í hönnun veitingastaðarins. Frá opnu eldhúsi rýmisins til brossins á andlitum þeirra, nota Junayd og Fjölla hvert tækifæri til að deila sögu sinni, frá minningum til máltíðar fyrir alla þeirra viðskiptavini sem þau taka hlýlega á móti. 

Fjölla og Junayd verða á veitingastaðnum Næs en hægt er að bóka borð á DineOut.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert